Þarf að endurgreiða hluta áfengisgjalds

Sundahöfn í Reykjavík.

Sundahöfn í Reykjavík. mbl.is/Golli

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Faxaflóahafnir sf. til að endurgreiða fyrirtæki, sem flytur inn áfenga drykki, hluta af vörugjöldum sem hafnirnar hafa lagt á áfengisflutninga. Taldi dómurinn að Faxaflóahafnir hefðu ekki sýnt fram á réttmæti þess að leggja hærri vörugjöld á áfenga drykki en gosdrykki.

Faxaflóahafnir innheimta vörugjöld af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land, úr landi á skipsfjöl eða úr einu skipi í annað. Samkvæmt gjaldskránni, sem gilti á árunum 2006 og 2007 var vörugjald, sem lagt var á áfenga drykki meira en tvöfalt hærra en vörugjald sem lagt var á óáfenga drykki. Þetta breyttist hins vegar árið 2008 og var í gjaldskrá fyrir það ár ekki lengur gerður greinarmunur á áfengum og óáfengum drykkjarvörum. 

Fyrirtækið HOB-vín höfðaði mál á hendur Faxaflóahöfnum og taldi að álagning vörugjaldanna hafi byggt á ólögmætum forsendum sem ekki samræmdust almennum reglum og kröfum íslensks stjórnsýsluréttar sem aðili í opinberum rekstri þurfi að gæta við töku þjónustugjalda.

Héraðsdómur tók undir þetta og segir m.a. í niðurstöðu dómsins, að fyrir liggi að hinn mikli verðmunur á milli vöruflokkanna hafi verið skýrður með því að reynt sé að raða vörum þannig í flokka að þær greiði svipaða prósentu af útsöluverði vöru af hverju tonni sem kemur í land.  Ekki liggur annað fyrir, sem skýrt geti, að áfengum drykkjum var raðað í annan gjaldflokk en óáfengum, en að þar hafi ráðið verðmæti vörunnar.

Taldi dómurinn að Faxaflóahafnir hafi því skort lagaheimild til að leggja hið umdeilda vörugjald á og dæmdi hafnirnar til að greiða HOB-vínum mismuninn á vörugjaldinu vegna óáfengra og áfengra drykkja þessi ár, samtals 774 þúsund krónur.

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, sagði að þeir væru að skoða málið. Ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvort málinu verður áfrýjað. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Íbúð til leigu í London
Falleg íbúð til leigu í hjarta Stoke Newington í Austur London. Rúmgott svefnher...
Trek Jet 20" 5 - 9 ára
Til sölu Trek barnahjól svart/blátt, lítur vel út, nýlegt afturdekk, alltaf geym...
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...