Benda á rétt barna til feðra

Myndin er af feðgum á flugdegi Landhelgisgæslunnar í fyrra.
Myndin er af feðgum á flugdegi Landhelgisgæslunnar í fyrra. Kristinn Ingvarsson

Feðradagurinn er í dag. Af því tilefni hefur Félag um foreldrajafnrétti vakið athygli á málefnum þar sem hallar á feður og börn. Félagið bendir á skýrslu sem sýnir að réttindi barna til feðra sinna séu verst á Íslandi miðað við löndin sem við miðum okkur gjarnan við.

„Íslensku lögin skera sig mikið úr í samanburði við lög annarra Norðurlanda. Nánast öll málefni Félags um foreldrajafnrétti hafa verið lögfest á hinum Norðurlöndunum,“ segir í frétt félagsins.

Þá segir félagið að almenn samstaða virðist vera innan grasrótar stjórnmálaflokkanna „um breytingar á barnalögum í átt við það sem þegar hefur gerst í löndunum í kringum okkur og í samræmi við stefnu Félags um foreldrajafnrétti.“

Frétt Félags um foreldrajafnrétti vegna feðradagsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert