Sjálfstæðismenn yfirgáfu þingsalinn
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins yfirgáfu þingsal Alþingis í dag á meðan atkvæðagreiðsla fór fram um frumvarp um vörumerki. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður flokksins, sagði að þetta gerðu þeir vegna þess að þeir hefðu ekki fengið að ræða fundarstjórn forseta.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði áður fengið orðið um fundarstjórn forseta og lýst þeirri skoðun að breyta ætti dagskrá þingsins og hefja þegar umræðu um skattaáform ríkisstjórnarinnar og ef það væri ekki hægt þá við fyrsta tækifæri.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði að hún myndi taka málið upp á fundi með þingflokksmönnum eftir utandagskrárumræðu um þorskkvóta, sem boðuð hafði verið í dag. Þegar fleiri þingmenn sjálfstæðismanna létu vita af því að þeir vildu ræða um fundarstjórn forseta sagði Ásta Ragnheiður að hún hefði brugðist við erindi Bjarna og gaf ekki fleirum orðið.
Eftir atkvæðagreiðsluna um vörumerkjafrumvarpið komu þingmennirnir í salinn á ný og þá fékk Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður sjálfstæðismanna, orðið um fundarstjórn forseta. Hann sagði að margir þingmenn hefðu ítrekað óskað eftir því að ræða um fundarstjórn en ekki fengið. Þótt forsetinn hefði brugðist við erindi Bjarna væri honum algerlega ómögulegt að vita hvaða skoðanir aðrir þingmenn hefðu á málinu. Sagði Illugi, að það hlyti að vera grundvallarréttur þingmanna að fá að tjá sig um fundarstjórn forseta.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, benti á að þingmenn úr fleiri flokkum hefðu beðið um orðið um fundarstjórn og það yrði kalt í neðra áður en Bjarni Benediktsson færi að tala fyrir hönd framsóknarmanna.
Bloggað um fréttina
-
Jóhannes Ragnarsson Móðursýkislæti og leikaraskapur Valhallarlýðsins -
Emil Örn Kristjánsson Einræðistilburðir
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. júlí 2009, Innlent Þingfundi frestað til 11.30
- Föstudagur, 3. apríl 2009, Innlent Rætt um fundastjórn þingsins í klukkustund
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Óásættanleg framkoma forsetans
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Þingmenn syngja og dansa darraðardans
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Einleikur forseta á bjöllu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































