Ísland fái aðild að umsóknarsjóði ESB
Til umræðu er nú innan Evrópusambandsins, að Ísland verði sett á lista yfir ríki sem gætu notið stuðnings sjóðs, sem ætlað er að aðstoða svonefnd umsóknarríki, lönd sem sótt hafa um aðild að sambandinu eða eru að undirbúa aðild.
Þetta kom fram hjá Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, á Alþingi í dag. Össur sagði, að stuðningur sjóðsins gæti verið í formi sérfræðiaðstoðar eða til funda og ráðstefnuhalds. Einnig gæti verið um að ræða bein fjárframlög til afmarkaðra verkefna en það krefðist mótframlags af hálfu ríkjanna sjálfra.
Össur sagði, að sendimenn hefðu komið frá Brussel til Íslands til að ræða þetta sérstaklega. Hann hefði sjálfur rætt við skrifstofustjóra Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, um þetta.
Ráðherrann var að svara fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokks, sem vildi fá upplýsingar um hvort Íslandi stæðu til boða lán og styrkir frá Evrópusambandinu í tengslum við umsóknarferlið.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vísaði til viðtals sem Stöð 2 átti við Össur í vikunni þar sem hann sagðist hafa upplýsingar um að allskonar sjóðir og styrkir myndu „dekka" kostnað við aðildarumsóknina að mestu leyti. Össur sagði að allir ættu sína erfiðu daga, þetta hefði verið vitlaust svar í sjónvarpinu og upplýsingarnar rangar.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, notaði tækifærið til að lýsa því yfir að umsóknarferlið væri ekki í hans umboði. Sagði hann að skoðanakannanir sýndu að innan við þriðjungur þjóðarinnar styddi aðildarumsóknina, ekki væri meirihluti fyrir slíku á þingi og því eðlilegast að draga umsóknina til baka. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, benti á að ályktun um umsókn að ESB hefði verið samþykkt á þinginu í sumar.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Hansson With a spoonful of sugar ... -
Ómar Geirsson Mútur duga ekki Össur minn. -
Guðmundur Jónas Kristjánsson ESB-hjáleigan Ísland fái ölmusustyrk vegna ESB-umsóknar -
Óðinn Þórisson Draga umsóknina til baka
Innlent »
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Fyrstu umræðu um ESB-tillögu lokið
- Fimmtudagur, 4. desember 2008, Innlent Biður ESB að undirbúa aðild Íslendinga
- Miðvikudagur, 4. nóvember 2009, Innlent Samningaviðræður við ESB verða erfiðar
- Mánudagur, 26. júlí 2010, Innlent Samþykktu að hefja viðræður
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Innlent Lettar styðja Íslendinga
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
































