Samskipti við Bandaríkin með besta móti

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra stækka

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mbl.is/Ómar

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að samskipti Íslands og Bandaríkjanna hafi frá árinu 2006 ekki verið jafn góð og á þessu ári. En árið 2006 hefði Sjálfstæðisflokkurinn borið ábyrgð á dæmalausu klúðri í samskiptum landanna tveggja.

Þetta kom fram þegar Össur svaraði fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks, um hvort ástæða þess, að nýr sendiherra Bandaríkjanna hefur ekki tekið til starfa hér á landi, geti verið vegna uppákomu í tengslum við veitingu fálkaorðu. 

Fram kom sl. vor, að Carol von Voorst, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hér, fékk bréflega tilkynningu um að veita ætti henni fálkaorðuna en þegar hún var á leið til Bessastaða fékk hún símtal frá forsetaskrifstofunni um að ekki stæði til að sæma hana orðunni.

Össur sagði, að það væri ekki sitt að dæma um hverjum forseti Íslands eigi að veita orður eða ekki. Þá sagði hann sér væri  tjáð að þegar  stjórnarskipti verði í Bandaríkjunum leggi allir sendiherrar fram lausnarbeiðni sína. Það taki að meðaltali 7 mánuði að skipa nýjan sendiherra. 13 ríki hafi ekki fengið skipaðan sendiherra ennþá en Barack Obama tók við embætti Bandaríkjaforseta í janúar.

Össur sagðist ekki hafa skilið hvers vegna Guðlaugur lagði þessa fyrirspurn fram á Alþingi fyrr en hann las Morgunblaðið í morgun en í leiðara blaðsins var fjallað um málið og m.a. sagt, að ef uppákoman  með fálkaorðuna hafi haft skaðleg áhrif á samskipti Íslands og Bandaríkjanna sé nauðsynlegt að eyða þeim eftirköstum sem allra fyrst.

Sagði Össur að Guðlaugur virtist telja það eitthvert sérstakt hlutverk sitt að vera sendisveinn ritstjóra Morgunblaðsins og bera svona mál inn í þingið. Ætti Guðlaugur ekki að smækka sig með því að gerast sendisveinn manna í einelti gagnvart forseta Íslands.

Guðlaugur sagðist ekki enn hafa lesið leiðara Morgunblaðsins í dag en tók fram að hann væri áskrifandi að blaðinu. Sagði hann að allir vissu, að fálkaorðumálið hafi ekki verið heppileg uppákoma og viðkvæmni utanríkisráðherra í þessu máli væri mjög áhugaverð.

Össur sagðist vera viðkvæmur fyrir virðingu þingsins og sagði að ekki ætti að misnota þingið í þeim tilgangi, sem augljóslega lægi á bakvið spurningu Guðlaugs og tengdist beint  leiðara Morgunblaðsins í dag. 

Guðlaugur hafði nú talað tvisvar í umræðunni. Hann spurði forseta þingsins hvenær í dagskrá þingsins væri hægt að verja sig fyrir því að vera sakaður um að misnota þingið þegar spurning væri lögð fyrir ráðherra. Ráðherrar ættu að bera það mikla virðingu fyrir sjálfum sér og þinginu að svara málefnalega þegar þeir væru spurðir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
Skoda Fabia
Skoda Fabia árg. 2006, ekinn 135 þús. Beinsk., útvarp m. geislaspilara, sumar- o...
Fleetwood Cheyenne árg. 2007, 10 fet.
Markísa, fortjald, grjótvörn, upph., álfelgur, heitt og kalt vatn, íssk., hljómt...
 
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...