Mótmæla álögum á heimilin í landinu

Útifundur Hagsmunasamtök Heimillana á Austurvelli stækka

Útifundur Hagsmunasamtök Heimillana á Austurvelli hag / Haraldur Guðjónsson

Hagsmunasamtök heimilanna mótmælta harðlega öllum hugmyndum um að auka álögur á heimilin í landinu. „Heimilin eru þegar að kikna undan þeirri greiðslubyrði sem á þau hefur verið lögð með óréttmætri stökkbreytingu á höfuðstóli lána þeirra. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á þessu ári rýrnað um hátt í 10% og mun sú þróun halda áfram á næsta ári," að því er segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna. „Hækkun neysluskatta fer beint út í verðlagið og þaðan yfir í verðtryggð lán heimilanna. Skora samtökin því á stjórnvöld að leita annarra leiða til loka fjárlagagatinu.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa auglýst eftir því, að gerð sé hagspá fyrir heimilin í landinu. Slík spá nái út árið 2012. Hin miklu efnahagsumbrot undanfarinna ára hafa mikil áhrif á hag heimilanna, en þeim er ætlað af standa undir veltunni í þjóðfélaginu. Hækkanir á höfuðstóli lána, breyting á kaupmætti, verðbólguþróun, skattakerfisbreytingar, atvinnustig, allt hefur þetta áhrif afkomu heimilanna, en samt er ekki talin þörf á því að gera hagspá fyrir heimilin eins og þau séu einhver afgangsstærð. Hvetja samtökin stjórnvöld til að sjá til þess, að slík hagspá verði gerð hið bráðasta.

Hafa skal í huga, að samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands og niðurstöðum skoðunarkönnunar samtakanna, eru tæp 20.000 heimili með greiðslubyrði yfir hættumörkum og önnur 44.000 rétt svo ná endum saman, m.a. með því að ganga á sparnað. Hætt er við því, að hugsanlegar skattkerfisbreytingar stjórnvalda muni ýta verulegum fjölda heimila til viðbótar fram af hengifluginu. Er það virkilega það sem við þurfum?

Hagsmunasamtök heimilanna vilja, í ljósi upplýsinga í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um sannvirði skulda heimilanna og í erindi sem Eyvindur G. Gunnarsson flutti á fundi Orators 11. nóvember um ólögmæti gengistryggðra lána, hvetja fjármálafyrirtæki til að koma meira til móts við lántaka sína og viðskiptavini með tafarlausri niðurfærslu höfuðstóls lána. Rými til slíkra aðgerða virðist verulegt og langt umfram ýtrustu kröfur samtakanna, þó svigrúmið sé vissulega misjafnt milli fjármálafyrirtækja. Er það mat samtakanna að niðurfærsla strax muni gangast betur við endurreisn hagskerfisins, en afskriftir síðar. Skora samtökin því á fjármálafyrirtækin að setjast niður með hagsmunasamtökum neytenda, m.a. HH, og stjórnvöldum með það markmið að finna lausn/úrræði sem allir eru sáttir við og hjálpa okkur við endurreisn Íslands. Núverandi úrræði gera það ekki og munu sum hver auka á áhrif kreppunnar frekar en að lina þau.

Loks vilja Hagsmunasamtök heimilanna ítreka að heimilin í landinu eru ekki botnlaus sjálftökusjóður stjórnvalda og illa rekinna fjármálastofnanna. Heimilin eru viðskiptavinir fjármálafyrirtækjanna, ekki mjólkurkýr, og samskipti við þau skuli byggð á virðingu, sanngirni, réttlæti og jafnræði," að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingarí síma 8694479 og 8...
palomino yearling 2004 til sölu
palomino yearling 2004 til sölu skoðað 2013 mjög vel með farið er með for...
Gisting á Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á rólegum og góðum stað á Akureyri. Sér inngangur...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...