Lausn Icesave-deilunnar ekki skilyrði AGS
Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að allir, þar á meðal AGS, verði að gera betur í því að útskýra fyrir Íslendingum hvað sé verið að gera til að taka á efnahagskreppunni. Hann segir jafnframt að AGS hafi aldrei sett það sem skilyrði að íslensk stjórnvöld yrðu að leysa Icesave-deiluna, áður en AGS tæki málefni Íslendinga til skoðunar.
Þetta kemur fram í svarbréfi Strauss-Kahn til Gunnars Sigurðssonar leikstjóra, sem bauð framkvæmdastjóranum til landsins fyrir hönd þeirra sem hafa staðið að opnum borgarafundum. Strauss-Kahn segist því miður ekki geta komist til landsins. Bréfið er birt á vef AGS.
Strauss-Kahn segist vera sammála því að efnahagskreppan á Íslandi sé mjög alvarleg, og eitt það alvarlegasta sem íslenska þjóðin hafi orðið að standa frammi fyrir.
Hvað varðar Icesave, þá segir framkvæmdastjórinn að það sé ekki hlutverk AGS að skipta sér af tvíhliða deilum ríkja. Það hafi sjóðurinn ekki gert. Hann tekur það hins vegar fram að Icesave-deilan hefði hins vegar tafið endurskoðun AGS með óbeinum hætti. Tafir hafi orðið á fjármögnun lána frá Norðurlöndunum. Strauss-Kahn bendir á lausn Icesave-deilunnar hafi verið skilyrði Norðurlandanna.
Strauss-Kahn segir einnig að upphaf kreppunnar megi rekja til íslenskra fjármálastofnana. Bankarnir hefðu tekið of mikla áhættu og eftirlitsaðilar hefðu ekki staðið sig í stykkinu. Einkavæðingin hefði lagt grunninn að þróuninni.
Þá kveðst Strauss-Kahn vera þess fullviss að samvinna AGS og íslenskra stjórnvalda verði Íslandi til góðs. Sú fjárhagsaðstoð sem Íslendingar muni fá sé óvenjulega mikil miðað við stærð íslenska hagkerfisins. Aðstoðin hafi m.a. átt þátt í því að koma á gengisstöðugleika hérlendis.
Hann segir jafnframt að áhrif efnahagssamdráttarins hérlendis hafi verið mun minni hér á landi samanborið við önnur lönd sem hafi þurft að ganga í gegnum alvarlegra efnahagskreppu.
Bloggað um fréttina
-
Ásta Hafberg S. Það kom svar.... -
Sigurður Sigurðsson Andskotans lygari - afsakið orðbragðið !!! -
Páll Vilhjálmsson Morðgáta Steingríms J., Jóku og Domma -
Halldór Halldórsson Heldur maðurinn virkilega ...... -
Ægir Óskar Hallgrímsson HA HA HA...!!!! -
Jón Baldur L'Orange Norðurlöndin handrukkari útrásargosanna -
Reynir W Lord Auðvitað lýgur hann ,,Ríkistjórninn okkar eru brúður AGS -
Óðinn Þórisson Ábyrgð Samfylkingarinnar -
Haraldur Haraldsson Lausn Icesave-deilunnar ekki skilyrði AGS/trúi þvi hver sem vill???? -
-
Kristin stjórnmálasamtök Það er ljótt að skrökva -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hvað gera kjörnir fulltrúar þjóðarinnar við atkvæðagreiðslu um ísklúðrið á ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Innlent Sendi nýtt bréf á Strauss-Kahn
- Sunnudagur, 7. mars 2010, Innlent Strauss-Kahn segir AGS skuldbundinn til að aðstoða Íslendinga
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Ísland uppfyllir skilyrði AGS
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Innlent Sendir ekki fyrirspurn til Norðurlanda
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Strauss-Kahn skautaði létt yfir
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































