Kröfðu afgreiðslustúlku um peninga

Tveir karlmenn gengu inn í verslunina Pétursbúð við Ránargötu um kl. 19 í kvöld og kröfðu afgreiðslustúlku um peninga. Að sögn lögreglu voru mennirnir óvopnaðir. Þeir komust undan og leitar lögregla þeirra.

Lögreglan segir að mennirnir, sem voru með hettur yfir höfði og huldu andlit sitt, hafi beðið um peninga. Afgreiðslustúlkunni hafi verið ógnað og hún orðið við kröfu mannanna. Ekki liggur fyrir um hve háa fjárhæð er að ræða.

Málið er í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert