Þorsteinn frá Hamri fær Jónasarverðlaunin
Þorsteinn frá Hamri hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í ár en verðlaunin voru veitt í Ketilhúsinu á Akureyri í dag. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu og hlutu þær Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit og Baggalútur.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Þorsteini verðlaunin. Í rökstuðningi ráðgjafarrefndar verðlaunanna segir m.a. að Þorsteinn sé meðal fremstu skálda Íslands og hann hafi glímt við gamlan og nýjan sið í skáldskap frá unga aldri.
Þorsteinn frá Hamri hlaut í verðlaun eina milljón króna og ritið Íslenska tungu sem er í þremur bindum. Einnig fengu fulltrúar Þórbergsseturs og Baggalúts viðurkenningar eins og áður sagði, listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur.
Vísað er til þess í umsögn ráðgjafarnefndar um Þórbergssetur, að það sé verðugur minnisvarði um einn af mestu meisturum íslenskrar tungu. Heimamenn hafi reist Þórbergssetur með stuðningi frá ríki og sveit og þeir séu ávallt reiðubúnir að ræða við gesti og veita fræðslu og upplýsingar um umhverfi, náttúru og mannlíf.
Um Baggalút segir, að það sé nokkuð sérstök menningarstofnun, annars vegar á netinu og hins vegar sem tónlistarhópur. Allt sé þetta í gamansömum tón en jafnan fylgi nokkur broddur gagnrýni og oft séu skilaboðin tvíræð.
„Viðgangur tungunnar á þessum sviðum er afar mikilvægur og þótt vissulega sé þar misjafn sauður í mörgu fé eru á þessum sviðum margvísleg sóknarfæri fyrir íslenska tungu og menningu. Baggalútar hafa alla sína texta á íslensku og leika sér með málið á skemmtilegan hátt. Það er líka þakkarvert þegar ungir hæfileikamenn, sem hafa gott vald á máli, skapa frjóan umræðuheim á netinu þar sem andinn leikur lausum hala, án of mikillar alvöru," segir í umsögninni.
Í ráðgjafarnefnd um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar
tungu sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir, Kristján Árnason og Þórarinn
Eldjárn.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Land, tunga og þjóð. -
Kristinn Pétursson Í tilefni dags íslenskrar tungu...."Hver á sér fegra föðurland" -
Jón Pétur Líndal Vel að verðlaunum kominn, en.. -
Bergur Thorberg Ágætir saman
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Vigdís hlaut verðlaun Jónasar
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Dagur íslenskrar tungu
- Sunnudagur, 16. nóvember 2008, Innlent Herdís Egilsdóttir fær verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
- Sunnudagur, 16. nóvember 2008, Innlent Dagur íslenskrar tungu
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Helga Kress heiðursgestur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































