Ótækt að hækka skatta fyrirvaralaust
mbl.is
Samtök ferðaþjónustunnar segja, að samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar í dag verði umtalsverðar hækkanir á sköttum og gjöldum í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustufyrirtækin hafi fyrir löngu gert samninga um verð fyrir árið 2010 og þess vegna sé ótækt að hækka skatta á þau fyrirvaralaust.
Í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar segir, að kolefnisskattar og hækkun bensín og olíugjalds muni leiða til 3-4% hækkunar á eldsneytisverði sem hafi áhrif á flugrekstur, rekstur hópbifreiða, flestar tegundir afþreyingar og bílaleiga. Gera megi ráð fyrir að þetta þýði u.þ.b. 300 milljónir í aukaálögur á íslensku flugfélögin.
Þá hafi olíugjald ítrekað verið hækkað síðustu misserin, nú síðast í maímánuði. Sem dæmi kaupi hópbifreiðafyrirtækin 12 milljónir lítra af olíu á ári. Í maí s.l. hækkaði kostnaður fyrirtækjanna um 75 milljónir á ársgrundvelli og nú bætist önnur eins hækkun við.
Samtökin benda á að þar sem hópbifreiðar, jeppar og önnur atvinnutæki í ferðaþjónustu séu ekki inni í virðisaukaskattskerfinu þá leggjast 25% ofan á allar hækkanir á olíuna. Aðrar greinar í landflutningum nutu ívilnana við síðustu hækkun olíugjalds.
Þá hafi hækkun virðisaukaskatts á matarsölu veitingahúsa úr 7% í 14% í för með sér 6,5% hækkun á verði. Við þá hækkun sé á nýjan leik tekið upp óþolandi misrétti milli sölustaða. Það hafi aukist mjög að almenningur kaupi tilbúinn mat og taki með sér heim. Hann sé seldur í matvöruverslunum, í sjoppum sem og á veitingastöðum. Víðast sé um sams konar mat að ræða, heimilismat, steikta kjúklinga, hamborgara, ýmis konar brauðrétti. Það muni því fara eftir því hvers konar starfsleyfi sé á viðkomandi sölustað hversu háan virðisaukaskatt fólk greiðir af sömu matartegundum. Þetta sé óþolandi samkeppnisumhverfi.
Lækkun virðisaukaskatts á veitingar niður í 7% árið 2007 hafi leitt til þess að dregið hafi úr svartri atvinnustarfsemi og samkeppnisstaðan batnað verulega. Hún muni versna á nýjan leik við þessa lækkun virðisaukaskatts.
„Ítrekað er að íslensk ferðaþjónusta er að skila ca. 150 milljörðum í erlendum gjaldeyri á þessu ári og veitir 15-20 þúsund manns störf. Samtök ferðaþjónustunnar hafa lagt á það þunga áherslu að gríðarleg samkeppni er um ferðamanninn í heiminum í dag og hækkun flugfargjalda og annarra kostnaðarliða fækkar ferðamönnum og þar með tekjum," segir í tilkynningu samtakanna.




































