Vildu ekki blanda sér í nafnadeiluna
„Þegar menn gerðu sér grein fyrir því að með því að sýna þessa mynd þá væri mögulega hægt að líta svo á að við værum að blanda okkur í þessa nafnadeilu ríkjanna var ákveðið að hætta við,“ segir Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, og vísar þar til myndarinnar A Name is a Name.
Um er að ræða nýja kvikmynd íslenska kvikmyndagerðarmannsins Sigurjóns Einarssonar sem til stóð að sýna á vegum sendiráðs Íslands í Washington. Myndin fjallar um ferðir Sigurjóns um Makedóníu og langvinna nafnadeilu Grikkja og Makedóníu um nafn síðast nefnda ríkisins.
Í samtali við mbl.is staðfestir Urður að sendiráð Íslands hafi verið beðið um að sýna myndina og ætlað að verða við þeirri bón, enda vilji til þess að kynna íslenska menningu. Þegar athygli manna hafi verið vakin á innihaldið myndarinnar hafi sú ákvörðun verið tekin hjá íslenska utanríkisráðuneytinu að sýna ekki myndina ytra.
Fjölmiðlar í Makedóníu fullyrða að grískir sendimenn hafi komið því á framfæri við íslenska sendiherrann að grísk stjórnvöld myndu beita sér gegn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu yrði myndin synd.
Aðspurð kannaðist Urður ekki við slíka hótun. Hún sagðist heldur ekki þekkja tilurð þess að starfsmenn sendiráðsins vestanhafs hafi gert sér grein fyrir því að myndin varðaði nafnadeiluna.
„Aðalmálið í okkar huga var að blanda okkur ekki í þessa nafnadeilu,“ segir Urður og bætir við: „Það er ekkert leyndarmál að þetta er mjög viðkvæm deila og það vita allir hvar báðar þjóðir standa í þessari deilu og þess vegna var ákveðið að sýna ekki myndina í sendiráðinu.“
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Innlent Mynd Íslendings um Makedóníu veldur uppnámi í Grikklandi
- Þriðjudagur, 9. nóvember 2010, Innlent Aðstoða fjölskyldu konunnar
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Innlent Sendiráð upp á 1,5 milljarða
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Innlent Fóru ekki tómhentir heim
- Þriðjudagur, 2. júní 2009, Innlent Óljósar fregnir af sendiherra
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































