Vísitala neysluverðs hækkar væntanlega um 1,3%

Skattabreytingarnar leiða til 15-16 milljarða króna hækkunar á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum. stækka

Skattabreytingarnar leiða til 15-16 milljarða króna hækkunar á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum. mbl.is/Golli

Þær skattabreytingar sem ríkisstjórnin kynnti í gær munu að mati Greiningar Íslandsbanka leiða til u.þ.b. 1,3% hækkunar á vísitölu neysluverðs á fyrsta fjórðungi næsta árs.

Í grófum dráttum er skipting þessara áhrifa þannig að hækkun virðisaukaskatts er líkleg til að valda 0,9% hækkun á vísitölu neysluverðs en hækkun vörugjalda og orku-, auðlinda og umhverfisskattar munu beint og óbeint leiða til 0,4% hækkunar vísitölunnar. Samkvæmt því munu skattabreytingarnar leiða til 15-16 milljarða króna hækkunar á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum. Þegar frá líður mun hækkun á beinum og óbeinum sköttum þó verða til þess að minnka verðbólguþrýsting vegna neikvæðra áhrifa á innlenda eftirspurn, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Skatttekjur lægra hlutfall af VLF

„Þrátt fyrir umfangsmiklar skattahækkanir um næstu áramót verða skatttekjur ríkissjóðs í hlutfalli við landsframleiðslu með því lægsta sem verið hefur undanfarin ár. Kemur þar meðal annars til hrun ýmissa skattstofna sem gefið hafa drjúgar tekjur síðustu ár, og má þar nefna tekjuskatta lögaðila og vörugjald af ökutækjum.

Skatttekjur ríkissjóðs stefna í að nema 24% af vergri landsframleiðslu á næsta ári. Þetta hlutfall náði hins vegar hámarki í 31% árin 2005 og 2006. Í þessari þróun endurspeglast sú sveiflujöfnun sem innbyggð er í opinber fjármál, þar sem skatttekjur minnka að öðru óbreyttu þegar í harðbakkann slær á meðan útgjöld aukast, til dæmis vegna aukins atvinnuleysis. Hins vegar hlýtur að teljast bagalegt að þróun helstu skatthlutfalla hafi verið á þann veg að lækka í góðærinu og hækka svo að nýju í kreppunni. Á þann hátt hafa opinber fjármál heldur magnað hagsveifluna en hitt," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ÖFLUGIR FJARSTÝRÐIR RAFMAGNS
Öflugir fjarstýrðir bensín- og rafmagnsbílar í ...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
www.flutningur.is 5753000 sendibilastöð
Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla og veitir trausta og umfram allt góð...
Til sölu Bosch GCM 10 bútsög
Vel með farin bútsög með borði. Lítið notuð. Verð 140.000 kr. Upplýsingar í...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...