60 þúsund hafa sýkst af H1N1
Sóttvarnarlæknir áætlar að um 60 þúsund manns hafi sýkst af H1N1 inflúensu hér á landi en 20.000 skammtar af bóluefni eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra.
Starfsmenn heilsugæslustöðva hafa frá því á mánudag tekið við pöntunum frá almenningi í bólusetningu en í ljósi tafa á afgreiðslu bóluefnis má ætla að endurskipuleggja þurfi biðlista á sumum heilsugæslustöðvum, að minnsta kosti, að því er segir á vef landlæknisembættisins.
Gert er ráð fyrir að 18.000 skammtar af bóluefni til viðbótar berist hingað í lok næstu viku en í ljósi reynslunnar er rétt að hafa fyrirvara á að sú áætlun standist. Spurn eftir bóluefni um allan heim er mun meiri en sem svarar til afkasta við framleiðslu þess.
110 þúsund orðnir ónæmir fyrir inflúensunni
Yfir 50.000 manns hafa verið bólusettir gegn inflúensunni hér á landi, einkum sjúklingar í skilgreindum forgangshópum, þungaðar konur og fólk í öryggis- og lykilstörfum af ýmsu tagi. Hluti þess hóps sem gegnir skilgreindum lykilstörfum, bíður bólusetningar og verður bólusettur í næstu viku.
Ef um 60.000 manns hafi sýkst af veikinni þá eru samtals yfir 110.000 manns orðnir ónæmir fyrir inflúensunni eða þriðjungur þjóðarinnar.
Inflúensufaraldurinn rénar nú hratt hérlendis, sem ekki síst skýrist af því hve margir hafa verið bólusettir.
Bólusetningin gengur afar vel og starfsmenn heilsugæslustöðva leggja hart að sér við umfangsmikið verkefni. Sóttvarnalæknir telur afar mikilvægt að landsmenn láti bólusetja sig við inflúensunni, þrátt fyrir að faraldurinn sé í rénun, til að draga úr líkum á nýjum faraldri á landinu síðar í vetur, að því er segir á vef landlæknis.
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. desember 2009, Innlent Bólusett á ný í næstu viku
- Föstudagur, 27. nóvember 2009, Innlent Tafir á bólusetningu gegn svínaflensu
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Innlent Nóg til af bóluefni
- Þriðjudagur, 4. ágúst 2009, Innlent Bóluefni fyrir 380 milljónir
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent 50 þúsund hafa veikst af inflúensu
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































