Kaupþing verður Arion banki

Nýi Kaupþing banki mun á morgun skipta um nafn og heita Arion banki. Segir bankinn, að nýja nafnið sé sótt í grískar fornsögur og vísi m.a. til
þrautseigju, samvinnu og endurkomu. Efnt var til samkeppni um nýtt nafn meðal starfsmanna bankans og var nafnið valið úr á þriðja hundrað tillagna.

Í tilkynningu frá bankanum segir, að nýju nafni fylgi ný stefna og gildi. Séu leiðarljós bankans fagmennska, framsækni, umhyggja og tryggð þar sem
viðskiptavinurinn er í forgrunni. Með nýjum áherslum sé verið að svara kröfum viðskiptavina og starfsmanna um breytingar í kjölfar endurskipulagningar bankans. Nýtt nafn muni auk þess koma í veg fyrir misskilning bæði í almennri umræðu og meðal innlendra og erlendra samstarfsaðila bankans.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri, segir í tilkynningu að  nýtt nafn,
stefna og gildi marki nýtt upphaf hjá bankanum. „Við erum á vissan hátt að segja skilið við hið gamla og ætlum að takast á við þær áskoranir sem eru í samfélaginu af fullum krafti. Markmiðið er að byggja upp traustan, öflugan banka sem vinnur með og fyrir fólkið í landinu.”

Kostnaði vegna breytinganna verður haldið í lágmarki og mun ásýnd útibúa taka breytingum á næstu vikum og endurnýjun á markaðsefni verður unnin á meðan eldri birgðir klárast. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Möguleikar nýju framboðanna

16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »
Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.

Enginn flótti af Y-lista

16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
14:30 „Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra. Meira »

Fleiri vilja aukið íbúalýðræði

14:31 Áhugi á auknum tengslum kjósenda við fulltrúa sína hefur aukist mikið á sveitarstjórnarstiginu á umliðnum árum, og raunar einnig upp á það síðasta á landsmálastiginu. Í niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir innanríkisráðuneytið kemur fram að áhuginn sé heldur að aukast með stjórnmálamanna heldur en hitt. Meira »

Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
13:48 Fulltrúar sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, afþökkuðu boð til fundar í forsætisráðuneytinu sem halda átti 9. febrúar síðastliðinn. Meira »

Óttast uppsögn

13:39 Snorri Óskarsson, grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri, telur að fundur hans á mánudaginn með skólayfirvöldum leiði til uppsagnar hans. Töluverð óánægja hefur verið vegna skrifa Snorra um samkynhneigða á bloggsíðu hans þar sem hann m.a. skrifar um samkynhneigð sem synd. Meira »

Ný fiðrildategund á Íslandi

Nýjasti landneminn: fiðrildi af tegundinni Maniola jurtina sem fannst norðan Vatnajökuls.
11:13 Landvörður á hálendinu norðan Vatnajökulssvæðinu fann stórt og dökkt fiðrildi þar síðastliðið sumar. Talið var í fyrstu að um aðmírálsfiðrildi væri að ræða en þegar myndir af fiðrildinu bárust Náttúrustofunni var ljóst að um eitthvað allt annað og mun sjaldgæfara var að ræða. Meira »

Ráðist á mann á áttræðisaldri

10:02 Karlmaður á áttræðisaldri liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir líkamsárás á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, sem er tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður, hefur verið handtekinn. Meira »

Játaði sprengjumálið

Frá vettvangi sprengjunnar á Hverfisgötu
12:23 Karl á áttræðisaldri hefur játað aðild sína að sprengjumálinu svokallaða. Hann mun hafa verið einn að verki og liggja aðrir ekki undir grun en málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi. Meira »

„Mjög hrottafengin árás“

Frá Þórshöfn á Langanesi
10:29 „Þetta var mjög hrottafengin árás,“ segir talsmaður lögreglunnar á Húsavík, en 71 árs gamall karlmaður var barinn og skorinn með hnífi á Þórshöfn seint í gær. Árásarmaðurinn, karlmaður á þrítugsaldri, var handtekinn á staðnum og segir lögregla að um hafi verið að ræða uppgjör áratugagamals máls. Meira »

Hass og árás á leigubílstjóra

09:21 Nokkuð erilssamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna lögreglu voru hassreykingar unglinga, akstur gegn rauðu ljósi, afskipti af fjölda gesta á skemmtistöðum og árás á leigubílstjóra Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trjá- og runnaklippingar
Baldur Gunnlaugsson, skrúðgarðyrkjumeistari tekur að sér klippingar á trjám og r...
FISCHER GÖNGUSKÍÐASTAFIR til sölu
Gönguskíðastafir frá FISCHER 155 cm Passa f manneskju 180-185 cm háa. Eiga að ná...
LINCOLN NAVIGATOR ELITE LONG
Lincoln Navigator Elite Long ´08 Flottasta gerðin. Ek. 72 þ...
Vantar íbúðir í Rvk
Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna vantar 3-4 herb. íbúðir í Rvk. Íbúðirna...
 
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur SFR st...
Yfirkokkur
Hótel- og veitingarekstur
Yfirkokkur Fjalakötturinn Restaura...
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...