Stöð 2 gert að breyta áskriftarskilmálum

mbl.is

Neytendastofa hefur gert 365 miðlum ehf. að breyta áskriftarskilmálum sínum vegna Stöðvar 2. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar vegna hækkunar á afnotagjöldum Stöðvar 2 en fyrirtækið tilkynnti áskrifendum ekki með fullnægjandi hætti um fyrirhugaðar breytingar á verði þjónustunnar og með því að veita áskrifendum ekki heimild til að slíta samningi vegna breytinga sem gerðar eru á áskriftartímabilinu.

Í ákvörðun Neytendastofu kemur fram að skilmálar sem heimili þjónustuveitendum almennt að gera einhliða breytingar á skilmálum geti talist ósanngjarnir. Auk þess séu skilmálar þar sem heimilt er að breyta verði án þess að neytandanum sé kynnt fyrirhugðu breyting og gefinn kostur á að slíta samningi ósanngjarnir.

Með ákvörðuninni er 365 miðlum gert að tilkynna áskrifendum sínum með fullnægjandi og sannanlegum hætti ef gerðar eru breytingar á skilmálum eða breytingar á verði þjónustunnar. Í núverandi skilmálunum er kveðið á um að 365 miðlum sé heimilt að gera breytingar á skilmálunum og að það verði tilkynnt á vefsíðunni stod2.is. Neytendastofa telur í þessu máli það ekki vera fullnægjandi tilkynningu. Vilji áskrifandi ekki sætta sig við breytinguna geti hann, skv. ákvörðuninni, slitið samningi eða sagt þjónustunni upp jafnvel þó að áskriftartímabili sé ekki lokið.

Ákvörðunin hefur mikið fordæmisgildi þar sem umfjöllun hennar á við um alla áskriftarskilmála gagnvart neytendum. Neytendastofa hvetur neytendur því til að kynna sér ákvörðunina og fylgjast með breytingum á þjónustu sem þeir eru í áskrift að og hvernig að staðið er að tilkynningum til þeirra um verð og aðra skilmála, að því er segir á vef Neytendastofu.

Ákvörðun Neytendastofu í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert