Annasöm nótt hjá lögreglunni á Selfossi
Mikill álagspunktur varð hjá lögreglunni á Selfossi um klukkan tvö í nótt. Eins og sagt hefur verið frá féll maður í húsgrunn á sumarhúsasvæði við Efra Langholt í Hrunamannahreppi um það leyti.
Sjö steypustyrktarjárn stungust inn í hann eða í gegnum hann og var hann í bráðri lífshættu. Hann hélt meðvitund megnið af tímanum þar til honum var komið í þyrlu en undir það síðasta hafði hann misst mjög mikið blóð og var mjög farið að draga af honum.
Maðurinn var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur og hefur verið í aðgerð fram á morgun. Ekki er hægt að upplýsa um líðan hans að svo stöddu.
Á sama tíma var einn maður handtekinn í heimahúsi í Þorlákshöfn eftir deilur við kærustu sína. Hafði hann verið að ota hnífi að konunni og ógna henni, en að sögn lögreglu var hann einnig með gríðarstóra teygjubyssu á sér. Höfðu deilurnar þeirra á milli upphaflega sprottið upp vegna teygjubyssunnar. Maðurinn hafði einnig ógnað konunni með teygjubyssunni.
Um svipað leyti gekk maður einnig berserksgang á Hótel Hlíð í Ölfusi. Hann sló meðal annars í gegnum rúðu og skar sig á hendi. Sjúkrabíll var sendur á staðinn og hafði maðurinn róast þegar komið var á vettvang. Var hann fluttur á Selfoss til aðhlynningar.
Að lokum varð bílvelta á Suðurlandsvegi austan við Selfoss um þetta leyti. Ekki urðu slys á fólki þar en bílstjórinn missti stjórn á bílnum í hálku. Ekki var um ölvunarakstur að ræða.
Að sögn varðstjóra var á mörkunum að lögregla hefði mannskap til að sinna öllum þessum útköllum á svo stuttum tíma.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 21. nóvember 2009, Innlent Bílvelta á Þingvallavegi
- Sunnudagur, 12. september 2010, Innlent Bílvelta í Biskupstungum
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Bílvelta í Melasveit
- Sunnudagur, 12. júlí 2009, Innlent Bílvelta í Borgarfirði
- Mánudagur, 27. desember 2010, Innlent Erill hjá lögreglu á Selfossi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































