Stefnumót ungs fólks og stjórnmálamanna
Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn efna til stefnumóts ungs fólks og stjórnmálamanna í Gyllta sal Hótels Borgar á morgun, mánudag, klukkan 16-18. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Hreiðar Már Árnason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema halda stutt erindi á stefnumótinu. Menntamálaráðherra hyggst ávarpa fundinn og tekur þátt í umræðum að erindum loknum.
Á stefnumótinu gefst ungu fólki tækifæri til að koma skoðunum og málefnum sínum á framfæri við menntamálaráðherra og aðra stjórnmálamenn. Auk þess fá stjórnmálamenn tækifæri til að ræða málefni ungs fólks. Æskulýðsfélögum, Æskulýðsráði, ráðherrum, þingmönnum, öllu ungu fólki og öllum áhugasömum um málefni ungs fólks er boðið á stefnumótið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangnum.
Í fréttatilkynningunni segir ennfremur að niðurstöður erlendra rannsókna sýni að þegar efnahagsþrengingar gangi yfir sé aldurshópurinn 16-25 ára í hvað mestri hættu. „Ef ekkert er að gert til að tryggja þátttöku þessa aldurshóps í samfélaginu er hætta á að þessi kynslóð týnist í framtíðinni. Einnig er hætt við að langvarandi atvinnuleysi og geðræn vandamál fari vaxandi meðal þessa hóps. Í því ljósi er afar mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða og setji málefni ungs fólks í forgang svo að koma megi í veg fyrir alvarlegar afleiðingar.“
Innlent »
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum fyrir norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Ungir bændur vilja bætt lánaumhverfi
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Heimili borga 29% meira vegna heilbrigðismála
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Býður sig fram í 3.-4. sæti VG í Reykjavík
- Föstudagur, 12. nóvember 2010, Innlent Ungmennadeild blóðgjafa stofnuð
- Laugardagur, 6. febrúar 2010, Innlent Þeim sem hætta í skóla og fá ekki vinnu líður verr
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































