Íslendings saknað í Noregi
Lögregla og leitarmenn í Noregi hafa leitað án árangurs að 48 ára gömlum íslenskum manni. Hans hefur verið saknað frá því eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags í Krødsherad norðan við Ósló. Að sögn lögreglunnar í Nordre Buskerud hefst leit að manninum með þyrlu um leið og léttir til á svæðinu.
Íslenska sendiráðið í Osló hafði ekki neinar upplýsingar um málið þegar til þess var leitað í morgun. Einstaklingur fann tösku eða bakpoka mannsins við þjóðveg 7 norðan við Noresund og skilaði henni á lénsmannsskrifstofuna í Nes, að sögn norska útvarpsins.
Að sögn norskra vefmiðla var maðurinn á leið heim frá Osló til Gol í Hallingdal með áætlunarbíl. Hann var ölvaður og látinn yfirgefa áætlunarbílinn á stoppistöð í miðbæ Noresund í Krödsherad fyrir kl. eitt aðfaranótt sunnudagsins. Ekki hefur spurst til hans síðan. Fjölskylda mannsins tilkynnti um hvarf hans í gær.
Vefsíða Aftenposten segir að síðast hafi sést til mannsins þar sem hann gekk með þjóðvegi 7 í átt til Hallingdal. Nú í morgun hafi lögreglan ekki haft hugmynd um hvað varð af manninum og hann hafi horfið sporlaust. Flaska sem hann var með fannst utan við Noresund en leit þar í kring hafi ekki borið neinn árangur.
Í nótt tóku um 35 manns frá lögreglu, slökkviliði og Rauða krossinum þátt í leitinni. Leit hófst aftur kl. 8 í morgun að norskum tíma. Nú er lágskýjað á svæðinu og verður þyrla notuð við leitina þegar léttir til að sögn Nils Erik Karlsen leitarstjóra hjá lögreglunni í Syðra-Buskerud umdæmi.
Í ljósi erfiðra leitarskilyrða í nótt sem leið verður leitað betur í kringum stoppistöðina.
Vefsíða Dagbladet segir að maðurinn hafi verið látinn yfirgefa áætlunarbílinn 80-90 km frá áfangastað. Mynd af manninum náðist í eftirlitsmyndavél á bensínstöð í Noresund kl. 00.28 aðfaranótt sunnudagsins. Lögreglan hefur fengið ábendingar frá ökumönnum sem áttu leið um þjóðveg 7 um að þeir hafi séð manninn á gangi með veginum.
Lögreglan telur ólíklegt að maðurinn hafi orðið fyrir bíl. Búið er að leita með leitarhundum meðfram þjóðveginum beggja vegna.
Maðurinn hringdi heim um kl. 00:57 en gat þá ekki gert grein fyrir því hvar hann var staddur. Slökkt er á farsíma mannsins og því ekki hægt að miða hann út.




































