Braut gegn stúlku fyrir 14 árum
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmd karlmann í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára gamalli stúlku.
Rúm 14 ár voru voru liðin frá brotinu þegar stúlkan kærði það. Maðurinn, sem var 18 og 19 ára þegar þetta gerðist, er nú orðinn fjölskyldumaður. Eru þetta m.a. ástæður fyrir því að refsingin var skilorðsbundin. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í bætur.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haft samfarir við stúlkuna í eitt skipti árið 1994 og í allt að 10 skipti árið 1995. Þá var hann ákærður fyrir að hafa haft við hana munnmök. Maðurinn viðurkenndi að hafa haft samfarir við stúlkuna nokkrum sinnum árið 1995 en hann var fundinn sekur um öll ákæruatriðin.
Héraðsdómur taldi ekki, að brot mannsins væru fyrnd. Þá hafi honum verið fullljóst um aldur stúlkunnar. Hafi maðurinn brotið gróflega gegn kynfrelsi stúlkunnar og barnslegu sakleysi, enda verði að telja að nítján ára gamall maður hafi mikla yfirburði gagnvart tólf og þrettán ára barni. „Eru ákvæði hegningarlaga um aldursmörk samræðis milli fólks sett í þeim tilgangi að verja ung börn og unglinga gegn slíkri háttsemi þar sem þau, sökum æsku, hafa ekki þroska til að taka ábyrgð á sjálfum sér né öðrum hvað þetta varðar," segir í dómnum.
Fram kemur einnig, að stúlkan hafi átt við langvarandi geðræn vandamál að stríða og verið fyrst lögð inn á geðdeild í nóvember 2001, þá nítján ára gömul. Ekki hafi verið sýnt fram á það fyrir dóminum að öll þau geðrænu vandamál, sem stúlkan hafi þurft að kljást við, stafi eingöngu af þeirri kynferðislegu misnotkun sem hún var beitt, enda lýsti hún því svo sjálf fyrir dóminum að hún væri ekki viss um að svo væri eingöngu.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Þór Guðjónsson Fá einhleypir þyngri dóma en fjölskyldumenn -
Adda Guðrún Sigurjónsdóttir Fjölskyldumaður? -
Þórarinn Þ Gíslason VIÐBJÓÐUR Á VIÐBJÓÐ OFAN ! ER SUMT FÓLK Í LANDINU ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Braut gegn 14 ára stúlku
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Þriðjudagur, 24. nóvember 2009, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
- Fimmtudagur, 26. mars 2009, Innlent Dæmdur fyrir samræði við 14 ára stúlku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































