Áfengisgjaldið hækkar um 42% á einu ári
Frumvarp vegna breytinga á óbeinum sköttum, það er álögum á vöru og þjónustu, var lagt fram á Alþingi í gær. Samtals er gert ráð fyrir því að tekjur ríkissjóðs aukist á árinu 2010 um 13,9 milljarða en um 14,7 milljarða á ársgrundvelli. Eru þetta um 2,4 milljörðum kr. lægri tekjur en gert var ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga af þessum tekjustofnum.
Lagt er til að gjöld á áfengi og tóbaki hækki um 10%, sem talið er munu skila um milljarði í viðbótartekjur í ríkissjóð. Verði það að veruleika hafa gjöld á áfengi hækkað um 42% á tólf mánuðum.
Gera má ráð fyrir að rekstur bifreiða verði dýrari hljóti frumvarpið samþykki, en það felur m.a. í sér 10% hækkun á bifreiðagjaldi frá næstu áramótum, sem er ætlað að skila ríkissjóði árlega 500 milljóna viðbótartekjum. Þá er lagt til að almennt bensíngjald hækki um 2,50 kr. á hvern lítra en olíugjald um 1,65 kr. á lítra. Einnig segir að í undirbúningi sé frumvarp um kolefnisgjald, sem ætlað er að skila ríkinu 900 milljónum.
Til viðbótar er lagt til að fjölmörg skráningar- og leyfisgjöld hækki, að meðaltali um 50%. Mest hækka dómsmálagjöld, sem er bæði ætlað að mæta auknum rekstrarkostnaði dómstóla og draga úr fjölda smærri mála sem berast dómskerfinu.
Eins og komið hefur fram er lagt til þriggja þrepa virðisaukaskattkerfi. Frá 1. mars á næsta ári verður samkvæmt frumvarpinu bætt við nýju 14% þrepi, og falla í þann flokk sykurvörur, óáfengar drykkjarvörur og sala veitinga- og kaffihúsa, sem allt bar áður 7% skatt. Þá verður almennur virðisaukaskattur hækkaður úr 24,5 í 25%, en gert er ráð fyrir að sú breyting taki gildi 1. janúar.
Reiknað er með að breytingar á vaskinum skili 6 milljarða króna tekjuauka ári og valdi 0,6% hækkun vísitölu neysluverðs.
Loks er lagt til að einstaklingum verði heimilað að leysa út séreignasparnað að upphæð 1,5 milljónir fyrir staðgreiðslu tekjuskatts og útsvars, til viðbótar þeirri milljón sem var heimiluð fyrr á árinu. Talið er að breytingin valdi mikilli aukningu í útgreiðslu séreignasparnaðar, sem skili ríkissjóði 5 milljarða tekjuauka en sveitarfélögum 2,6 milljörðum.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson "Nú eg bgennivínið ogðið svo dýgt...". -
Gunnlaugur Bjarnason Bruggmeistarar hagnast verulega ! -
Haugurinn bloggar Lífslíkur þingmanna -
Marta smarta Hættið nú alveg. -
Sigríður B Svavarsdóttir Þetta skilar sér ekki milliliðalaust í kassann. -
Axel Jóhann Axelsson Endalaust hugmyndaflug í skattamálum -
Ómar Geirsson Heimskra manna ráð. -
Gestur Guðjónsson Sósíalistar kynda verðbólgubálið -
Sigurður Gunnarsson Heimilisvænar hækkanir -
Jón Snæbjörnsson Skattur á skatt ofan ! -
Haraldur Haraldsson Áfengisgjaldið hækkar um 42% á einu ári///þetta mun auka brugg ... -
Frjálshyggjufélagið Jóladagatalið II (Skattatalið) -
Ásgrímur Hartmannsson Það eina sem þetta gerir er að auka verðbólgu -
percy B. Stefánsson Hættulegur tilgangur hækkunar áfengisgjalds?? -
Villi Asgeirsson Geðveiki -
Stefán Reynisson Stór hluti af lítilli köku er ekki betri en lítill ... -
Innlent »
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
- Veita Hvít-Rússum aðstoð
- Áfallin staða A-deildar í plús
- Er hóflega bjartsýnn
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Bandormur um auknar tekjur ríkisins
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Reikna með 87 milljarða halla
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Greiðslur vegna gjaldþrota tvöfaldast
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Hækkun skatta og skerðing bóta rýrir kaupmátt um 0,5%
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Samþykkt að leggja Íbúðalánasjóði til 33 milljarða
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?




































