Fær ekki bætur fyrir að falla í hver
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landspítala af bótakröfu manns, sem féll í hver í Reykjadal nálægt Hveragerði árið 2003 og brenndist mikið. Maðurinn var í hópi unglinga, sem tók þátt í ævintýraferð á vegum iðjuþjálfunar barna og unglingageðdeildar spítalans.
Fjórir starfsmenn BUGL voru leiðbeinendur unglinganna, gættu þeirra og skipulögðu ferðina. Gengið var í Reykjadal frá Hveragerði og tjaldað nálægt Klambragili við mörk tveggja lækja þar sem heitur lækur rennur út í kalda bergvatnsá. Að loknu baði í lækjarmótunum var ákveðið að fara í stutta gönguferð inn Klambragilið en þar er göngustígur sem liggur ofan við heita lækinn, sömu megin og tjaldbúðirnar, en þó hvergi nálægt læknum fyrr en mun ofar. Allir leiðbeinendurnir fóru í þessa gönguferð með unglingunum en umræddur piltur varð eftir í tjaldi sínu ásamt tveimur öðrum unglingum.
Pilturinn hélt hins vegar á eftir hópnum inn gilið og féll þá í hver sem þar var. Hann höfðaði bótamál gegn Landspítala og krafðist 6,5 milljóna króna í bætur. Sagðist hann hafa viljað fara með í gönguferðina en starfsmennirnir skilið hann eftir. Því bar sjúkrahúsið á móti og sagði, að þeir unglingar sem voru þreyttir og vildu ekki fara með hafi fengið að verða eftir í tjöldunum til þess að hvíla sig, þar á meðal pilturinn.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu, að pilturinn væri einn til frásagnar um málsatvikin en eins og hann lýsi þeim verði að líta svo á að fall hans í hverinn hljóti að hafa verið slys sem engum verði kennt um. Tjón hans verði því ekki rakið til saknæmrar háttsemi starfsmanna BUGL.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. júní 2009, Innlent Þyrla sótti ferðamann í Reykjadal
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Drengur fær bætur fyrir handtöku
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Með tæp 40 grömm af amfetamíni
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Ekki um mistök lækna að ræða
- Þriðjudagur, 1. desember 2009, Innlent Bótakröfu vegna alvarlegs slyss hafnað
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































