Kreppan veldur ekki fleiri barnaverndarmálum

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fer sífellt fjölgandi en ekki hefur orðið sérstaklega hröð fjölgun á þeim ... stækka

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fer sífellt fjölgandi en ekki hefur orðið sérstaklega hröð fjölgun á þeim vegna kreppunnar. Ásdís Ásgeirsdóttir

Engar vísbendingar eru um að tilkynningum til barnaverndarnefnda hafi fjölgar í kjölfar kreppunnar. Þeim hefur hins vegar fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum, samkvæmt nýrri athugun Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Fjölgun tilkynninga fyrri hluta ársins 2009 hefur í fjölmiðlum verið talin gefa til kynna að vaxandi hópur barna byggi við alvarlegan vanda. Velferðarvaktin taldi ekki unnt að draga óyggjandi ályktanir um ástæður fjölgunarinnar og óskaði því eftir úttektinni.

Helstu niðurstöður eru þessar:

  • Á landinu öllu hefur tilkynningum til barnaverndar á árunum 2005-2009 fjölgað um 20-32% á fyrstu sex mánuðunum hvers árs, nema árið 2008 þegar þeim fækkaði.
  • Sú fjölgun sem varð á tilkynningum til barnaverndar fyrri hluta árs 2009 er því sambærileg við fjölgun á undanförnum árum, að frátöldu árinu 2008.
  • Ekkert í gögnum bendir til þess að fjölgun tilkynninga fyrri hluta árs 2009 sé afleiðing efnahagsþrenginga eða aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagskreppunnar. Svo virðist sem ástæður hennar séu þær sömu og fyrir aukningu undanfarin ár.
  • Samkvæmt sískráningu er ekki að sjá meginbreytingar milli ára á eðli þess vanda sem tilkynntur er eða hverjir það eru sem tilkynna til barnaverndar á fyrstu mánuðum áranna 2005-2009.

Í skýrslunni segir að fullt tilefni sé til að ætla að tilkynningum um börn sem þurfi á aðstoð barnaverndar að halda muni halda áfram að fjölga og álag á starfsfólk í þessum málaflokki aukast enn frekar. Sú spurning hljóti að vakna hvort fjölgunin verði viðvarandi og einnig hvort ætla megi að áhrifa efnahagsþrenginga muni gæta í enn frekari fjölgun tilkynninga.

Í lok skýrslunnar eru settar fram tillögur til velferðarvaktarinnar um aðgerðir. Þar er meðal annars lagt til að reglubundin skráning upplýsinga hjá barnaverndarnefndum verði aukin og bætt við upplýsingum um atvinnustöðu/fjölskyldu beggja foreldra barna sem tilkynnt er um.

Myndin sýnir þróun í fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda á tímabilinu 1996 til 2008. Hægt er ...

Myndin sýnir þróun í fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda á tímabilinu 1996 til 2008. Hægt er að smella á hana til ... Súlurit frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingarí síma 8694479 og 8...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...