Skerðingu fæðingarorlofs mótmælt


BHM lýsir andstöðu við frekari skerðingu réttinda í fæðingarorlofi, þar sem slíkt er skref afturábak í jafnréttismálum og vegur að réttindum barna og fjölskyldna. Markmið fæðingarorlofs er að tryggja barni samvistir við báða foreldra og gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá miðstjórn BHM.

„BHM varar eindregið við því að tímabundið erfiðleikaástand í efnahagsmálum verði látið koma svo harkalega niður á samfélagslegum framfaramálum, sem kostað hefur mikla baráttu og fórnir að ná fram.
 
Markmið laga um fæðingarorlof er að jafna stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði og tryggja þátttöku beggja foreldra í uppeldi og umönnun barna.  Með breytingum þeim sem gerðar voru síðastliðið sumar var stórlega dregið úr möguleikum karla til töku fæðingarorlofs.

BHM telur betur fara á að markvisst sé unnið að því að uppfylla markmið laganna, enda eru nú ýmsar blikur á lofti hvað varðar jafna stöðu karla og kvenna."
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert