Fimmfalt fleiri biðja um aðstoð
Það fé sem safnast mun renna til neyðaraðstoðar á Íslandi og til vatnsverkefna í Afríku. Hjálparstarf kirkjunnar
Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst formlega með messu í Hallgrímskirkju næstkomandi sunnudag kl. 11. Um leið opnar ljósmyndasýning Hjálparstarfsins með myndum frá Súdan og Indlandi í anddyri kirkjunnar. Það fé sem safnast mun renna til neyðaraðstoðar á Íslandi og til vatnsverkefna í Afríku.
Í tilkynningu frá Hjálparstarfinu segir að greiðsla að upphæð 2.500 krónur bíði landsmanna í heimabankanum. Upphæðin rennur til helminga til aðstoðar innanlands og til vatnsverkefna í Afríkuríkjunum, Malaví, Úganda og Eþíópíu.
Vegna kreppunnar hefur þörfin fyrir aðstoð hér heima aukist gríðarlega. Sé litið til síðustu tveggja ára hefur umsóknafjöldinn í októbermánuði fimmfaldast, var árið 2007 171 og í ár 886. Að baki hverri umsókn eru 2,7 einstaklingar að meðaltali sem þýðir að meira en 2300 einstaklingar nutu góðs af aðstoðinni í októbermánuði síðastliðnum.
Einnig hefur hrun íslensku krónunnar leitt til þess að skuldbindingar í tengslum við erlend verkefni, sem eru í dollurum, hafa hækkað mjög.
Þeir sem vilja velja málefni sem gjöfin á að renna til geta farið á styrktarsíðuna www.framlag.is og valið úr fjölda verkefna innanlands og utan.
Hægt er að hringja í söfnunarsíma 907 2002 og gefa 2.500 kr. til aðstoðar innanlands, 907 2003 fyrir aðstoð erlendis. Gjafabréfasíðan www.gjofsemgefur.is er mjög vinsæl og margir nýta sér hana til að finna jólagjöf sem skilar sér til þriðja aðila á Íslandi eða úti í heimi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent 58 milljónir söfnuðust í jólasöfnun
- Mánudagur, 15. febrúar 2010, Innlent 68 milljónir í jólasöfnun
- Sunnudagur, 30. nóvember 2008, Innlent Von í viðjum skuldanna
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Safna fyrir fórnarlömb hruns
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Grýla og Skyrgámur styðja Hjálparstofnun kirkjunnar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































