Tafir á bólusetningu gegn svínaflensu
Töf á afhendingu bóluefnis gegn A(H1N1) inflúensu raskar áætlunum
sem gerðar höfðu verið um bólusetningar. Þórólfur Guðnason yfirlæknir á
sóttvarnasviði landlæknis segir líklegt að þegar fyrirliggjandi
bóluefnisbirgðir klárist verði næsta skammti ekki dreift fyrr en 15.
desember.
Þórólfur sagði að framleiðsla á bóluefninu hafi
ekki verið í samræmi við áætlanir. Þar er m.a. um að kenna
undirverktökum framleiðandans. Hann sagði fleiri en Íslendinga verða
fyrir barðinu á þessari töf.
Áætlað var að bóluefnið yrði afhent vikulega. Fólk yrði því kallaði inn vikulega til bólusetningar. Þórólfur sagði að bóluefni sem átti að koma í þessari viku komi e.t.v. ekki fyrr en í næstu viku.
Sennilega verður áætlun um bólusetningu breytt þannig að bóluefni verði ekki dreift fyrr en 15. desember og þá því magni sem verður tiltækt. Þeir sem eiga pantaða bólusetningu á næstu dögum mega því búast við að verða ekki bólusettir fyrr en eftir 15. desember.
Misjafnt er hve mikið
heilsugæslustöðvar eiga nú af bóluefninu. Því er ekki ljóst hvernig
gengur að bólusetja þá sem þegar eru á biðlista eftir bólusetningu.
Nú er búið að bólusetja forgangshópa, þ.e. heilbrigðisstarfsfólk, fólk í öryggisþjónustu og fólk með undirliggjandi sjúkdóma, og byrjað að bólusetja almenning. Þórólfur taldi stöðuna hér betri en annars staðar á Norðurlöndunum. Þar sé ekki búið að bólusetja forgangshópana.
Þegar hafa hátt í 70.000 Íslendingar verið bólusettir og taldi Þórólfur það eiga sinn þátt í því hve hratt hefur dregið úr útbreiðslu faraldursins. Þá er talið að um 60.000 manns hafi þegar smitast af inflúensunni.Sóttvarnalæknir hefur nú tilkynnt að bóluefni verði næst dreift til heilsugæslustöðva 15. desember og síðan 6. janúar 2010 og munu heilsugæslustöðvar ekki taka við fleiri tímapöntunum í bólusetningu fyrr en 15. desember, fyrir það bóluefni sem þá verður dreift.
Starfsfólk heilsugæslustöðva bólusetur áfram með því bóluefni sem það hefur til umráða, á meðan það endist.Segir í tilkynningu að heilsugæslustöðvar annast endurbókanir tíma fyrir bólusetningu og veita upplýsingar.
Ástæður tafa við afhendingu bóluefnis eru minni framleiðslugeta framleiðandans en áætlað var, vandamál sem tengjast innpökkun bóluefnis og fleira. Vandinn snertir alla sem bíða eftir bóluefninu, ekki aðeins Íslendinga.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. nóvember 2009, Innlent Best að vera samstíga
- Föstudagur, 11. desember 2009, Innlent Bólusett á ný í næstu viku
- Föstudagur, 20. nóvember 2009, Innlent 60 þúsund hafa sýkst af H1N1
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Ekki látið vita að tímar í bólusetningu frestuðust
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent 50 þúsund hafa veikst af inflúensu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































