Heilsársvegur milli norður- og suðursvæðis

Ísfirðingar fagna nýjum áföngum í samgöngubótum.
Ísfirðingar fagna nýjum áföngum í samgöngubótum. mbl.is/Brynjar Gauti

Almennur borgarafundur samþykkti ályktun þar sem hvatt er til þess að næsta stórverkefni í samgöngubótum á Vestfjörðum eigi að vera heilsárvegur á milli norður og suðursvæðis Vestfjarð.

Fundurinn var fjölmennur, en á honum var fagnað nýfengnum samgöngubótum á Vestfjörðum, í Ísafjarðardjúpi og um Þröskulda. Bent er á að framundan væari bylting í samgönguöryggi með jarðgöngum til Bolungarvíkur.  Fundurinn hvatti stjórnvöld til þess að hvika ekki frá markaðri stefnu um uppbyggingu Vestfjarðavegar í Barðastrandarsýslu.

"Það er eindregin skoðun fundarmanna að næsta stórverkefni verði að opna heilsárveg milli norður og suðursvæðis Vestfjarða og að það sé eðlilegt framhald af uppbyggingu Vestfjarðavegar í Barðastrandarsýslu. Aðstæður allar kalla á leiðina ÁFRAM VESTUR hvort heldur er að vestan til Ísafjarðardjúps eða þaðan og áfram vestur. Staða byggðar á Vestfjörðum hefur veikst verulega undanfarin ár. Stækkun atvinnu- og samgöngusvæðisins með Dýrafjarðargöngum og heilsárs öruggum samgöngum milli svæðanna er áhrifamikil aðgerð, sem gerir Vestfirðingum kleift að snúa vörn í sókn á fjölmörgum sviðum. Mikilvægt er að á næstu árum verði áfram unnið að undirbúningi annarra brýnna verkefna, en höfuðáhersla er nú lögð á samtengingu svæðanna.

Heilsárs öruggar samgöngur eru grundvöllur nútímasamfélags ekki síður en aðgangur að heilbrigðisþjónustu og réttindum velferðarþjóðfélagsins.  Það er óþolandi að Vestfirðingar skuli hafa verið án þessara réttinda áratugum lengur en flestir aðrir þegnar þjóðfélagsins. Við það verður ekki unað lengur að lítilsvirða grundvallarþörf á þessu sviði.  Það er krafa fundarins að ríkisvaldið virði skyldur sínar og ráðist í ofangreindar framkvæmdir samkvæmt fyrirliggjandi stefnu Alþingis.

Almennur borgarafundur á Ísafirði lýsir skilningi á erfðri stöðu þjóðarbúsins eftir hrun helstu fjármálafyrirtækja landsins og fundarmenn eru tilbúnir til þess að taka þátt í erfiðu endurreisnarstarfi með stjórnvöldum. En að sama skapi er þess vænst að stjórnvöld hafi ríkan skilning á stöðu Vestfirðinga og átti sig á því tjóni sem þeir hafa þegar orðið fyrir vegna skorts á sömu mannréttindum og flestir aðrir landsmenn njóta."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert