Sérsmíðaður viðskiptavinabekkur til sölu

Sérsmíðaði viðskiptavinabekkurinn er auglýstur til sölu á heimasíðu Frjálsa fjárfestingabankans.
Sérsmíðaði viðskiptavinabekkurinn er auglýstur til sölu á heimasíðu Frjálsa fjárfestingabankans.

Frjálsi fjárfestingabankinn býður ýmsar eignir til sölu á heimasíðu sinni sem bankinn hefur tekið upp í skuld. Þar er t.d. hægt að kaupa skápa, borð, sófa, lampa, fundarborð úr mahóní og "sérsmíðaðan viðskiptavinabekk".

Bankinn er með myndir af eignum sem eru til sölu og upplýsingar um verð og fleira.  Hægt er að kaupa brúnt leðursófasett á 300 þúsund og sérsmíðaði viðskiptavinabekkurinn kostar 90 þúsund.

Bankinn auglýsir líka húseignir til sölu sem hann hefur yfirtekið og er einnig með leigumiðlun. Heimasíða bankans er www.frjalsi.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert