Þorbjörn fær Barnamenningarverðlaun
Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla nýja uppbyggingu meðal annars tónlistardeild Fjölsmiðjunnar.
Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.
Þetta er í fimmta sinn sem Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna er úthlutað og afhenti Kári Stefánsson Þorbirni Jenssyni verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag; verðlaunagrip úr silfri er nefnist Samleið eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og ávísun að upphæð 3,5 milljónir króna.
Fjölsmiðjan er vinnustaður þar sem ungt fólk fær þjálfun fyrir almennan vinnumarkað eða skóla. Frá því hún tók til starfa árið 2001 hafa um 400 nemendur stundað þar vinnu og hafa um 80% þeirra fundið sér farveg út í lífið að nýju, annað hvort í vinnu eða í skóla, sem telst afar góður árangur.
Við sama tækifæri var úthlutað lokastyrk að upphæð 20 milljónir króna til Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar vegna verkefnisins Sumargleði velferðarsjóðs barna og veitti Soffía Pálsdóttir styrknum viðtöku fyrir hönd ÍTR, sem alls hefur fengið 40 milljóna króna styrk frá sjóðnum vegna þessa verkefnis.
Í heild hefur Velferðarsjóður barna lagt fram í gegnum þetta verkefni 82 milljónir króna til styrktar tómstundastarfi fyrir börn á Íslandi í sumar. Um 15 þúsund börn, alls staðar að af landinu, hafa notið góðs af því en markmiðið með verkefninu er að tryggja jafnan aðgang barna að sumarnámskeiðum. Þá er verkefninu einnig ætlað að tryggja nemendum í framhaldsskólum vinnu.
Þá fékk Miðstöð foreldra og barna fram að fimm ára aldri ríflega 3ja milljóna króna styrk til að standa straum af kostnaði við meðferðarhópa mæðra og barna og veitti Sæunn Kjartansdóttir styrknum viðtöku.
Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna árið 2000 og er frumkvöðull hér á landi hvað varðar slíkan styrktarsjóð. Heildarupphæð styrkveitinga úr sjóðnum í ár nemur um 160 milljónum króna og hefur framlag sjóðsins aldrei verið hærra en úthlutað er úr sjóðnum 6-8 sinnum á ári.
Frá stofnun Velferðarsjóðs barna árið 2000 er búið að úthluta alls um 600 milljónum króna til margvíslegra verkefna.


































