Útflutningsverðmæti óunnins afla jókst um 45%

Verðmæti óunnins afla, sem fluttur er út, hefur aukist mikið …
Verðmæti óunnins afla, sem fluttur er út, hefur aukist mikið vegna gengisfalls krónunnar.

Á síðasta fiskveiðiári var fluttur út óunninn afli á erlenda fiskmarkaði með veiðiskipum og gámum að verðmæti 17,8 milljarðar króna. Verðmæti útflutts óunnins afla jókst því um 45,5% á milli fiskveiðiára en útflutt magn jókst úr 56.548 tonnum í 59.349 tonn eða 5%.

Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Þar segir, að sé litið til heildarverðmæta frá fiskveiðiárinu á undan hafi verðmæti óunnins útflutts afla aukist um 75% en útflutt magn hefur aukist um tæp 19%. Ætla megi að staða íslensku krónunnar hafi veruleg áhrif í þessum efnum.

Af einstökum tegundum er flutt mest út af óunninni ýsu eins og undanfarin fiskveiðiár.  Útfluttur ýsuafli fiskveiðiárið 2007/08 var 23.755 tonn að verðmæti 4,7 milljarðar króna en 22.347 tonn fiskveiðiárið 2008/09 að verðmæti 6,4 milljarðar króna. Þrátt fyrir 5,9% samdrátt í útflutningi á ýsu jókst verðmæti um 37,8%.

Útflutningur á óunnum þorski jókst milli síðustu tveggja fiskveiðiára. Útfluttur þorskafli fiskveiðiárið 2007/08 var 5843 tonn að verðmæti 1,96 milljarðar króna en 8827 tonn fiskveiðiárið 2008/09 að verðmæti 3,3 milljarðar króna. Þetta er aukning um 51,1% í magni og 68,6% aukning í verðmæti.

Af öðrum tegundum ber helst að nefna að útflutningur á óunnum karfa minnkar jafnt og þétt síðustu þrjú fiskveiðiár.

Mikil aukning er í útflutningi og verðmætum á óunninni grálúðu á milli 2007/08 og 2008/09. Jafnframt hefur útflutningur á blálöngu, skarkola og þykkvalúru aukist jafnt þétt yfir tímabilið sem litið er til.

Vefur Fiskistofu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert