Gagnrýnir viðbrögð Steingríms

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra fyrir þau ummæli hans að þeir sem haldi því fram að skuldir þjóðarbúsins séu meiri en talið hafi verið fari með dylgjur, þar með talið Þór Saari sem ráðherrann vænir um hræðsluáróður.

„Þau er í rauninni öll á sama veg. Í hvert skipti sem að bent er á eitthvað í meginatriðum þessa máls og þannig er það búið að vera mánuðum að saman – atriði sem að varða efnahagslega framtíð landsins – að þá er það slegið út af borðinu með því annað hvort að draga úr trúverðugleika þeirra manna sem eru að benda á þetta, sama hver það er, þó það séu heimsþekktir prófessorar og jafnvel nóbelsverðlaunahafar, eða þá að því er einfaldlega lýst yfir að menn séu ekki sammála. Það er ekki ráðist í rökræðu um málið og það birtist til dæmis í þinginu þessa dagana þar sem að enginn stjórnarliði fæst til að halda ræðu um afstöðu sína til Icesave-málsins."

Sigmundur víkur því næst að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

„Það er alveg með ólíkindum það sem að Lilja Mósesdóttir og Ólafur Arnarson og þessi hópur sem að hitti Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í dag hefur eftir fulltrúum sjóðsins að aðferðin sem hann hafi notað til að áætla hverjar verði gjaldeyristekjur Íslendinga næstu árin hafi verið sú að áætla hvaða gjaldeyri við munum þurfa til að borga af Icesave.

Og það hafi síðan orðið það sem að þeir hafi áætlað að yrði afgangurinn næstu árin þrátt fyrir að sá afgangur myndi þýða að það væri margfaldur metafgangur af útflutningi ár eftir ár."

– Hvað hefurðu um þetta að segja?

„Þetta finnst mér alveg lýsandi fyrir það hvernig allt þetta mál hefur verið unnið og eru að mínu mati mjög sláandi fréttir en þó í fullu samræmi við það sem að hefði mátt vænta. Því að svona var líka uppleggið í skýrslu Seðlabankans, sem var reyndar gagnrýnd mjög af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

Bæði hjá sjóðnum og bankanum er gert ráð fyrir margföldum metafgangi af útflutningi og nú virðist vera ljóst að það sé gert eingöngu til þess að réttlæta það að menn taki á sig Icesave-skuldirnar, á meðan aðrir, óháðir aðilar hafa lagt fram skýrslur sem að sýna svart á hvítu að það sé nánast ómögulegt að verða sér út um nægan gjaldeyri til þess að standa undir þessu og reka um leið eðlilegt þjóðfélag. Ég tel það sé einmitt svona sem að menn hafi unnið hlutina og það er náttúrulega alveg stóralvarlegt mál."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert