Kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar
Græna netið kærði í dag til umhverfisráðherra ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009 um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og tengdra framkvæmda.
Kæra Græna netsins byggist á því að ávinningur af sameiginlegu mati línulagnar, áformaðs álversrekstrar við Helguvík, virkjana o.fl. framkvæmda náist ekki með umhverfismati hverrar og einnar af þessum framkvæmdum, að því er segir í tilkynningu.
Þá segir að Græna netið telji að réttur almennings til fullrar upplýsingar og áhrifa vegi þyngra en rök Skipulagsstofnunar um óhagræði framkvæmenda af sameiginlegu mati og vísar til laga og lögskýringargagna í því sambandi.
Aðeins með heildstæðu mati á þeim framkvæmdum sem nauðsynlegar séu til að mæta orkuþörf vegna rekstrar álversins við Helguvík og til annarra nota verða áhrif þeirra að fullu leidd í ljós, svo sem sjónræn áhrif vegna línulagna og bygginga, rask vegna veglagningar og efnistöku í sambandi við framkvæmdirnar, áhrif á loftgæði og hljóðvist vegna umferðar og framleiðslu.
Græna netið vekur sérstaka athygli á því að hvergi liggur fyrir hvaða orkuöflunarkosti á að nýta fyrir fullbyggt 360 þúsund tonna álver við Helguvík með 630 MW orkuþörf. Meðan ekki fæst skorið úr því og öðrum álitamálum eru ekki forsendur til að meta legu og umfang Suðvesturlínu. Þegar horft er til legu þeirra virkjunarkosta sem helst hafa verið nefndir í þessu sambandi er ljóst að núverandi tillögur um legu Suðvesturlínu kalla á talsvert lengri tengingar en ef línustæðið yrði lagt suður Þrengslin, framhjá Þorlákshöfn og meðfram fyrirhuguðum Suðurstrandarvegi, en ekki yfir vatnsból og vatnsverndarsvæði höfuðborgarinnar og grannbyggða.
Græna netið er „félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina“ og eru í því bæði félagar í Samfylkingunni og umhverfissinnar utan flokka. Katrín Theodórsdóttir lögræðingur og stjórnarmaður í Græna netinu skrifar undir kæruskjalið fyrir hönd félagsins.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Rangar upplýsingar um orkuþörf álvers
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Segja úrskurð ekki standast lög
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Ekki sameiginlegt mat
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Ekki í sameiginlegt mat
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Innlent Ákvörðun Skipulagsstofnunar felld úr gildi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































