Hættir hjá Alþjóðahúsinu

Alþjóðahúsið Laugavegi stækka

Alþjóðahúsið Laugavegi

Katla Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Alþjóðahússins, hefur ákveðið að láta af starfinu sem og störfum fyrir Kosmos ses. Katla er einnig framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Segir hún umfangs starfsins fyrir Alþjóðahúsið hafa verið mun meira en hún hafi sjálf óskað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Katla hefur sent á fjölmiðla.

Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom fram að starfsmenn Alþjóðahúss voru ósáttir við að stjórnin kom í veg fyrir að lögfræðingur yrði ráðin til starfa eins og nauðsyn var að þeirra mati. Katla, sem var stjórnarformaður, þáði laun fyrir 50% vinnu í Alþjóðahúsi þrátt fyrir að hún væri í 100% starfi annars staðar, en hún er framkvæmdastjóri hjá Rauða Krossinum.

„Ég undirrituð, Katla Þorsteinsdóttir, vil koma á framfæri eftirfarandi yfirlýsingu vegna fréttar á Stöð2 í gærkvöldi. Ég harma þá tengingu sem fram kom í fréttinni milli starfa minna fyrir Alþjóðahúsið og Kosmos ses annars vegar og Rauða krossins í Reykjavík hins vegar. Vegna þessa hef ég ákveðið að hætta öllum afskiptum af Alþjóðahúsinu og Kosmos ses. og mun ég ganga frá því formlega strax eftir helgi.

Í tilefni af þessu vil ég að það komi fram að umfang starfa minna fyrir Alþjóðahúsið á þessu ári varð miklu mun meira en til stóð og ég sjálf óskaði. Um áramótin 2008/2009 sagði framkvæmdastjóri upp störfum og óskaði þegar lausnar þar sem hann hafði þá ráðið sig í annað starf. Á þessum tíma voru þjónustusamningar við  sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu lausir og félagið rekið með 20 milljón króna halla árið 2008. Það voru því engar forsendur að mati meirihluta stjórnar að auglýsa og ráða framkvæmdastjóra. Ákveðið var að ég tæki að mér hluta af lögfræðiráðgjöf og úrvinnslu og lögfræðingur fyrirtækisins tæki stól framkvæmdastjóra. Unnið var að drögum um nýjan þjónustusamning við Reykjavíkurborg en undirskrift hans dróst til 7. júlí. Frá 28. desember 2008 hafði ég þó hverja viku ástæðu til að ætla að undirritun færi fram innan fárra daga og unnt yrði að skipuleggja reksturinn og auglýsa lausar stöður.

Ætlun mín var aldrei sú að sinna starfi hjá Alþjóðahúsi að því marki eða svo lengi sem raun varð, heldur var það ætlun mín að bjarga málum þar til staðan væri ljós. Mér láðist þennan tíma að gera stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða krossins grein fyrir umfangi starfa minna fyrir Alþjóðahús. Mér þykir það mjög miður. Eins þykir mér afskaplega miður að vita afstöðu fyrrverandi starfsmanna Alþjóðahúss, en mér var hún ekki ljós nema að litlum hluta. Eins og áður sagði hef ég ákveðið að hætta alfarið störfum fyrir Alþjóðahúsið. Ég óska þess innilega að borgaryfirvöld taki skjóta ákvörðun varðandi framtíð hússins, en stjórn Alþjóðahúss hefur lagt til þrjár tillögur um lausnir. Vona ég að brotthvarf mitt verði til þess að skapa frið um þjónustu við innflytjendur en hún er aðalatriðið í þessu máli.“

Katla Þorsteinsdóttir

Katla Þorsteinsdóttir mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
Ruggustóll
Stór og flottur ruggustóll til sölu. Verð 30 þús. kr. Uppl. mit@simnet.is....
 
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...