Tekur við bæjarstjórastarfinu á fimmtudag
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.isÓlafur Örn Ólafsson tekur væntanlega við starfi bæjarstjóra í Grindavík á fimmtudag en boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar á miðvikudagskvöldið. Eins og fram kom í fréttum mbl.is í gærkvöldi hefur verið myndaður nýr meirihluti í bæjarstjórn Grindavíkur. Ólafur Örn var áður bæjarstjóri í Grindavík en hann lét af störfum sumarið 2008 þegar síðasti meirihluti var myndaður í sveitarfélaginu.
Um er að ræða meirihluta Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna en i síðasta meirihluta voru Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn.
Ólafur Örn hefur verið á launaskrá hjá Grindavíkurbæ frá því hann lét af störfum en það er í samræmi við þá reglu að bæjarstjórar eru ráðnir tímabundið til fjögurra ára og var það gert þegar Ólafur Örn var ráðinn bæjarstjóri í Grindavík árið 2006. Segir Ólafur Örn að ráðning hans nú muni ekki þýða aukakostnað fyrir sveitarfélagið. Hann muni ekki flytja til Grindavíkur en eins og kunnugt er keypti Grindavíkurbær hús hans í bænum þegar hann lét af störfum. Ólafur Örn býr í Njarðvík og hyggst búa þar áfram en sveitastjórnarkosningar fara fram í lok maí á næsta ári.
Aðspurður um hvers vegna hann taki við starfi bæjarstjóra á ný segir Ólafur Örn að hann hafi tekið að sér það verkefni að stýra Grindavíkurbæ fyrir fjórum árum og því verkefni ætli hann nú að ljúka við án þess að þiggja fyrir það aukagreiðslur.
Bloggað um fréttina
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir Lýkur verkefninu. -
Einar Guðjónsson Kostar hundrað milljónir
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 6. desember 2009, Innlent Nýr meirihluti í Grindavík
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Síðasti bæjarstjórnarfundur Jónu Kristínar
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Nýr meirihluti í pípunum?
- Fimmtudagur, 29. júlí 2010, Innlent Ólafur Örn ráðinn í Ölfusi
- Föstudagur, 26. mars 2010, Innlent Nýr meirihluti í Ölfusi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































