Fundað um Icesave utan þingsals

Icesave er enn til umræðu á Alþingi. stækka

Icesave er enn til umræðu á Alþingi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Formenn þingflokka áttu í dag fund með forseta Alþingis um atburði morgunsins í fjárlaganefnd. Í kjölfarið funduðu formenn flokkanna og á næsta klukkutíma munu fulltrúar flokkanna í fjárlaganefnd setjast niður og ræða málin. Einn nefndarmanna telur þó alls óvíst að niðurstaða fáist. Trúlegt er talið að Icesave komist aftur á dagskrá á milli sex og sjö.

Fulltrúar flokkanna í fjárlaganefnd munu reyna að festa niður meðferð málsins í nefndinni, þ.e. í samræmi við samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu frá því um helgina. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir óvíst um lyktir málsins eins og staðan er núna.

Engu breytir þó um hver niðurstaða fundarins verður. Eftir að umræður um þrjú frumvörp félagsmálaráðherra - um atvinnuleysistryggingar, almannatryggingar og eftirlaun til aldraðra - klárast verður frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindingana sett aftur á dagskrá. Það verður svo rætt fram á kvöld.

Forseti Alþingis sagði við upphaf þingfundar í dag að miðað væri við að þingfundur stæði til klukkan átta í kvöld, en litið yrði svo að á ef fundurinn drægist væri það með vilja formanna flokkanna.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Maður stunginn í Hafnarfirði

09:04 Maður var stunginn með hnífi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í nótt. Atburðarás mun vera nokkuð óljós, að sögn lögreglu, en sex manns koma við sögu málsins. Fjórir voru handteknir og færðir í fangageymslur, þeirra á meðal var sá sem stunginn var. Meira »

Hrun í ruslinu frá hruni

09:00 Efnahagur heimila speglast að nokkru í þeim úrgangi eða sorpi sem þau skila í ruslatunnur og á endurvinnslustöðvar. Sé þetta lagt til grundvallar hafa heimilin ekki enn náð sér á strik eftir hrunið haustið 2008. Mestur samdráttur frá hruni hefur hins vegar verið í efni frá byggingaverktökum. Meira »

112-dagurinn er í dag

08:48 112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag, laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Meira »

Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið

Líflegt var á uppboði danska uppboðshússins Kopenhagen Fur.
08:30 Mikil eftirspurn var eftir minkaskinnum á loðskinnauppboði Kopenhagen Fur sem lauk í gær. Verðið hækkaði og hefur aldrei verið hærra. Áætlað er að meðalverð íslenskra skinna sem þar voru boðin til sölu hafi farið yfir 10 þúsund krónur. Meira »

Of ungir inni á Kónginum

08:20 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ungmennum sem voru við skemmtanahald á skemmtistaðnum Kónginum í Grafarholti í Reykjavík. Þetta var um hálf tvö leytið í nótt, en lögregla var á staðnum við hefðbundið eftirlit. Meira »

Hafa gert hugtakið merkingarlaust

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður.
08:39 „Hvaða "vinstri-flokka"?“ spyr Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi aðspurð hvort hún og ný stjórnmálahreyfing hennar Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar stefni á samstarf við vinstriflokkana. Meira »

Hálka víða um land

08:22 Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum, snjóþekja á Lyngdalsheiði og hálkublettir eru víðast hvar á Suðurlandi. Hálka er í Kringum Vík. Meira »

Opið á skíðasvæðum norðan og austan

08:09 Ekki ætti að væsa um skíðaáhugafólk fyrir norðan og austan í dag, því skíðasvæðin á Dalvík, Hlíðarfjalli á Akureyri og í Oddsskarði verða opin í dag. Meira »

Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu

Með vænar grásleppur.
08:00 Grásleppuvertíð hefst væntanlega eftir rúman mánuð, en samkvæmt drögum að reglugerð er reiknað með að heimilt verði að hefja veiðar 15. mars á flestum svæðum. Meira »

Bjartviðri austanvert

05:40 Suðvestanátt, víða 8-15 m/s, fram á daginn. Él verða vestan til en úrkomuminna með morgninum. Bjartviðri á austanverðu landinu. Snýst í sunnanátt síðdegis með slyddu á köflum en síðar rigningu vestantil í kvöld. Hiti kringum frostmark en hlýnar þegar líður á kvöldið. Meira »

Vilja starfshóp um atvinnumálin

Blönduós.
07:30 Bæjarstjóri Blönduóss segir það vera skýra kröfu heimamanna að komið verði á fót starfshópi með þátttöku ráðuneyta og aðila á svæðinu varðandi frekari uppbyggingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra. Meira »

Fengu lán úr sjóðum

Stefán Hilmarsson.
05:30 Fram kom í dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag að ólögmæt lán hefðu verið tekin úr styrktarsjóðum Baugs til að fjármagna daglegan rekstrarkostnað. Meira »

Vildu vera í Póllandi

Pólskir verkamenn á Íslandi.
05:30 Góður meirihluti Pólverja sem tóku þátt í viðtalskönnun sumarið 2010, eða sex af hverjum tíu, kvaðst aldrei mundu hafa flutt til Íslands ef sæmandi starf hefði boðist heima fyrir. Meira »

Lífeyrissjóðir bjóða í krónur

Evrur.
05:30 Væntanlegur hagnaður af gjaldeyrisútboðum Seðlabanka Íslands sem lífeyrissjóðirnir munu taka þátt í verður notaður til að fjármagna hlut lífeyrissjóðanna í sérstökum vaxtabótum. Meira »

Ýsan var dýrari en þorskurinn

Bræðurnir Snorri og Guðlaugur Rafnssynir við löndun á Ólafsvík á 7,5 tonnum sem fengust í ...
05:30 Í vikunni gerðist það að ýsa seldist fyrir hærra verð en þorskur á fiskmörkuðum. Á miðvikudag voru seld 17,7 tonn af óslægðri ýsu og meðalverðið 349 krónur á kíló. 37,7 tonn af þorski fengu kaupendur á 340 krónur kílóið. Í gær var ýsan seld á um 280 krónur en þorskurinn á rúmlega 300 krónur. Meira »

Þrír forsætisráðherrar á sólarhring

Steingrímur J. var um tíma ráðherra efnahags, viðskipta, landbúnaðar og sjávarútvegs og forsætisráðherra.
05:30 Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, kemur aftur til landsins síðdegis í dag hafa þrír ráðherrar gegnt starfi forsætisráðherra á einum sólarhring. Meira »

Þór er kominn til Noregs

Siglingin til Bergen gekk vel þrátt fyrir brælu alla leiðina.
05:30 Varðskipið Þór kom til Bergen í Noregi á miðvikudagskvöld til viðgerðar. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hefst nú vinna við skipið og er búist við því að viðgerðin taki fjórar til fimm vikur. Meira »

Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.
Í gær, 23:28 „Gaman að þessum stjórnmálafræðingum sem fjölmiðlar tala helst við. Þegar stjórnarflokkarnir fá ærlega rassskellingu heitir það ávallt „fjórflokkurinn“. Það var vandamál „fjórflokksins“ þegar margir voru óákveðnir og enginn annar valkostur var kominn fram,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FERMINGARVEISLUR
Fermingarveislur Klassískt heitt og kalt hlaðborð kr. 1990 á mann. Klassískt kaf...
Shar Pei hvolpur
Þessi 10 vikna Shar Pei hvolpur (rakki) er tilbúinn til afhendingar til nýrra ei...
Barborð
Til sölu svart háglans hornbarborð 120x120x100. Hilla undir glös og veigar inní ...
Toyota LC 120 VX Diesel 2004
Diesel - Ek 99 þús - 33" Breyting Arctick Trucks - 8 manna Leður - Glertopplúga ...
 
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922098 [Kk...
Skuðrhjúkrunarfræðingur
Heilbrigðisþjónusta
Mynd af auglýsingu ...
Vélavörður á sighvat gk-57
Sjávarútvegur
Vélavörður Vísir hf. óskar eftir vél...
Order nr. 003077 -ilo
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...