Var kunnugt um bréfaskiptin
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, var þegar í sumar kunnugt um þau bréfaskipti Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, og Mark Flanagan, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í málefnum Íslands, sem nýlega voru birt á vefsíðunni Wikileaks.
„Það var sérstaklega tekið fram að ekki mætti ræða það sem var í leynimöppunni, segir Sigmundur Davíð sem er mjög ósáttur viðræður samninganefndar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á tíma minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. „Það er algjörlega úr samræmi við það sem lofað var.“
Því hafi verið heitið að ekkert yrði gert í Icesave málinu án samráðs við Framsóknarflokkinn. „Enda var ég búin að lýsa því yfir að ég gæti ekki sætt mig við að menn kvittuðu upp á raunverulegar lagalegar skuldbindingar.“
Sigmundur Davíð kveðst hafa nefnt margt af því sem finna má í bréfaskiptum Indriða og Flanagan á lokuðum fundum með forystu stjórnarflokkanna, en hann hafi engin svör fengið sem máli skipta.
Óeðlilegt sé t.a.m. að menn leiti ráðgjöf hjá sama aðila og þeir telja að verið sé að nota gegn sér. Ýmislegt í svari Flanagans sé sömuleiðis áhugavert.
„Til dæmis þessi ríkisábyrgðarleið sem nú er verið að ræða, Flanagan telur að það felist í raun enginn munur á henni eða því að þetta lendi bara á ríkinu og það er ekki í samræmi við það sem að samningamenn og ríkisstjórnin hafa haldið fram.“
Flanagan haldi því sömuleiðis fram að hann hafi komið skilaboðum til Breta og Hollendinga um að skuldastaða íslenska þjóðarbúsins sé verri en áætlað var og þar af leiðandi þoli menn ekki eins háar álögur og ráð hafði verið fyrir gert.
„Þetta sýnir í fyrsta lagi hversu tæpt er á því að menn standi undir þessu ef breytingar í skuldahlutfallinu þýða að menn aðlagi álögurnar eftir því og hins vegar nú þegar komið hefur í ljós að skuldirnar eru svo miklu meiri en þær voru taldar á þessum tíma, þá hlýtur það líka að þýða að þessar álögur eru of miklar.“
Bloggað um fréttina
-
Jóhannes Ragnarsson Leyndarpukrari fer af hjörunum -
Harpa Magnúsdóttir Hver er skuldastaða Íslendinga ?
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 6. desember 2009, Innlent Icesave-póstar á Wikileaks
- Mánudagur, 7. desember 2009, Innlent Vildu sýna fram á að Ísland væri að vinna að Icesave-lausn
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Fordæma tölvupósta Indriða
- Laugardagur, 14. mars 2009, Innlent Þjónkun IMF við stjórnvöld
- Mánudagur, 7. desember 2009, Innlent „Eðlileg samskipti“
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































