Vildu sýna fram á að Ísland væri að vinna að Icesave-lausn

Indriði H. Þorláksson. stækka

Indriði H. Þorláksson. Eggert Jóhannesson

Fjármálaráðuneytið segir, að tilgangur tölvupóstsendingar Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra, til Marks Flanagans, starfsmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í apríl hafi meðal annars verið að sýna fram á að af Íslands hálfu væri verið að vinna að lausn á málinu sem legið hafði niðri um langa hríð.

Hins vegar hafi verið ætlunin að fá mat sjóðsins á þeirri nýju nálgun í samningaviðræðunum við Breta og Hollendinga, sem unnið hafði verið og stuðning við hana ef til slíks gæti komið. Til að undirstrika það hafi verið bent á að samningar samkvæmt fyrri hugmyndum væru óaðgengileg lausn fyrir Ísland. Í svari sjóðsins komi fram að þótt starfsmenn hans geti ekki haft bein afskipti af samningunum hafi þeir talið tillögur Íslands færa leið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu þar sem fjallað er um tölvupóstsamskipti Indriða. Segir þar m.a. að viðræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um endurskoðun á áætlun sjóðsins hafi farið fram nokkru áður. Þar var farið yfir hvernig miðað hefði með þau efnisatriði sem tiltekin voru í samkomulaginu við sjóðinn. Samningar við Breta og Hollendinga voru þar á meðal og því þótti rétt að gera sendinefnd sjóðsins grein fyrir stöðu þess.

Gagnrýnt hefur verið, að Indriði tilgreindi einkatölvupóstfang sitt í póstinum til Flanagan. Fjármálaráðuneytið segir, að Indriði hafi gert þetta vegna þess að hann var á förum til Kaupmannahafnar daginn eftir og taldi að hann ætti auðveldara aðgengi að væntanlegu svari með þeim hætti.

„Skeytið til Mark Flanagan var sent úr tölvupóstkerfi stjórnarráðsins og reyndin var sú að svarskeytið barst einnig þangað og eru vistuð þar. Þá voru afrit(cc.) af skeyti Indriða H. Þorlákssonar og svari Mark Flanagan sent á embættisnetföng fjármálaráðherra, formann samninganefndarinnar auk starfsmnanns hennar. Engin hætta var á því að samskiptin færu fram hjá skjalakerfi ráðuneytisins," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Tilkynning fjármálaráðuneytisins

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Carina E til sölu - Skoðaður 2013
Árgerð 1997, Vínrauð, 1800vél, 4 dyra, sjálfskipt. Ekin 219 þús. km. Búið að s...
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
Garðuðun Meindyraeyðir
Uða garða gegn maðki og lus eyði Köngulom af husum geitungum flo öll almenn og s...
Til sölu Harley Davidson Electra Glide 2005
Ekið 6000 mílur mikið af aukahlutum Upplýsingar í s 898-9543...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...