Of þungum fjölgar hratt
Helmingur fullorðinna eða meira er nú talinn of þungur eða of feitur í 13 aðildarríkjum Efnahags- og frafarastofnunarinnar, OECD, þar á meðal á Íslandi. Árið 2007 var hlutfall of feitra lægst í Japan og Kóreu, rúm 3% og hæst, 34% í Bandaríkjunum. Á sama tíma var þetta hlutfall 20% á Íslandi samanborið við 12% árið 2002 og 8% árið 1990.
Þetta kemur m.a. fram í nýrri skýrslu OECD, Health at a Glance, sem kom út í dag og fjallað er um á vef Hagstofunnar. Þar kemur einnig fram að 13,8% barna á aldrinum 11-15 ára í löndum OECD voru of þung eða of feit á árunum 2005 til 2006 en eitt af hverjum fimm í Kanada og nærri eitt af hverjum þremur í Bandaríkjunum þar sem hlutfallið var hæst. Hér á landi voru 14,5% barna á þessum aldri of þung eða of feit. Var hlutfallið um 10% í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en 15,8 í Finnlandi. Á Íslandi voru 22% 15 ára drengja of feitir (OECD 17%) og 12 % stúlkna (OECD 10%).
Hlutfall þeirra sem reykja hefur farið lækkandi á undanförnum árum, hlutfallslega meira meðal karla en kvenna. Var Ísland meðal sjö landa OECD með hlutfall daglegra reykinga undir 20% árið 2007.
Á sama tíma og dregið hefur úr áfengisneyslu í meirihluta ríkja OECD frá árinu 1980 hefur áfengisneysla hér á landi aukist um 74% og var 7,5 alkóhóllítrar á mann 15 ára og eldri árið 2007 en meðaltal OECD var 9,7 lítrar.
Í riti OECD er fjallað um niðurstöður alþjóðlegrar könnunar á heilsu og lífskjörum skólanema 2005-2006, sem Ísland tók þátt í. Þar kemur fram að 13-14% íslenskra 15 ára ungmenna reyktu að minnsta kosti einu sinni í viku en meðaltal 24 OECD landa var 16-17%. Hlutfall ungmenna sem höfðu orðið drukkin a.m.k. tvisvar um ævina var 31% hjá drengjum og 32% hjá stúlkum en meðaltal OECD landa var 33 % og 29%.
Hærra hlutfall stúlkna en drengja neytti ávaxta daglega en hjá báðum kynjum fór neysla ávaxta minnkandi með hækkandi aldri. Minnkaði þetta hlutfall um allt að helming frá 11 ára aldri til 15 ára aldurs hér á landi eða úr 51% í 28% hjá stúlkum og úr 39% í 18% hjá drengjum. Fyrir OECD löndin dróst sambærilegt hlutfall saman úr 46% í 36% hjá stúlkum og úr 38% í 26% hjá drengjum.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Ísland framarlega í heilbrigðisþjónustu
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Öfgar í lyfjanotkun
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Hvergi hærra útskriftarhlutfall úr háskólanámi
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Útjöld Íslands til skólamála hæst innan OECD
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Ísland ver hlutfallslega mestu til menntamála
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































