Jafngildir 1.100 milljörðum fyrir Íslendinga

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson mbl.is

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, segir í pistli á vefsíðu sinni að bráðabirgðaniðurstaða ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, jafngildi um 1.100 milljörðum króna fyrir Íslendinga.

„ESA telur að neyðarlögin brjóti ekki í bága við ákvæði EES samningsins. Þessi niðurstaða er um 600 milljarða króna virði fyrir íslenska skattgreiðendur. Fyrirsjáanlegt er að ESA telji að sama ábyrgð verði að vera á öllum innstæðum í Landsbankanum óháð þjóðerni eigandans og óháð því í hvaða útibúi bankans peningarnir voru vistaðir. Í Icesave samkomulaginu greiðir íslenska ríkið aðeins lágmarkstrygginguna. Það munar um 520 milljörðum króna á því og öllum innstæðunum.
Það má því segja að bráðabirgðaálit ESA jafngildi um 1100 milljörðum króna fyrir Íslendinga,“ segir Kristinn H. Gunnarsson í pistli á vefsíðu sinni, www.kristinn.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert