Fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á kröfu lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um að Catalina Mikue Ncogo sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 22. desember nk. Annarri konu sem einnig var handtekin vegna málsins hefur verið sleppt úr haldi.
Catalina var í byrjun desember dæmd í 2½ árs fangelsi fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis, en sýknuð af ákæru um mansal. Í október fékk lögregla ítrekað fengið nafnlausar ábendingar þess efnis að nokkrar konur stunduðu vændi á heimili Catalinu og að þjónustan væri auglýst á netinu.
Lögreglan kannaði þessar auglýsingar en í þeim eru myndir af hálfnöktum konum og vísbendingar um að hægt sé að hringja í símanúmer þeirra til að fá kynlíf.
Lögregla fékk einnig upplýsingar um að nokkrar konur hafi komið til landsins til að stunda vændi á vegum Catalinu. Einnig komi í ljós að sérstakt húsnæði hafði verið tekið á leigu undir vændisstarfsemina.
Að sögn Friðriks Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, þótti ekki ástæða til að halda annarri konu sem handtekin var vegna málsins. Henni var sleppt í gærkvöldi.
Friðrik segir rannsókn málsins miða vel en sé þó hvergi nærri lokið. Að minnsta kosti þrjár aðrar konur koma við sögu í málinu en þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Konurnar eru allar á fertugsaldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál en konurnar þrjár hafa verið færðar til skýrslutöku hjá lögreglu.
Rannsóknin tekur einnig til þeirra sem keyptu kynlífsþjónustuna sem veitt var og hafa nokkrir verið yfirheyrðir vegna þessa.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. júní 2010, Innlent Dómur yfir Catalinu þyngdur
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Neitaði sök í mansalsmáli
- Föstudagur, 11. desember 2009, Innlent Krefjast áframhaldandi varðhalds
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Catalina önnur kvennanna
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Gæsluvarðhald staðfest yfir Catalinu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































