Leggjast gegn friðun alls Skjálfandafljóts
Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar í vikunni, að leggjast eindregið gegn því að allt Skjálfandafljót verði friðlýst.
Um var að ræða umsögn um þingsályktunartillögu um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár, sem Þuríður Backman og fleiri þingmenn lögðu fram á Alþingi.
Fram kemur í samþykkt sveitarstjórnarinnar, að unnið sé að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar og standi vonir til að það verði staðfest fyrir mitt næsta ár. M.a. hafi verið rætt um að friða hluta Skjálfandafljóts en þar falli undir þeir staðir sem þegar eru á náttúruminjaskrá, eins og Goðafoss, Aldeyjarfoss, Hrafnabjargafoss og Þingey.
Í vinnudrögum aðalskipulags sé lagt til að fallið verði frá öllum virkjunaráformum í Skjálfandafljóti, þar á meðal áformum um Hrafnabjargavirkjun. Hins vegar vilji sveitarfélagið áskilja sér rétt til að nýta vatn úr Skjálfandafljóti til vistvænnar starfsemi, eins og t.d. kælivatnstöku fyrir tölvugagnaver þar sem vatninu yrði skilað aftur í fljótið.
„Sveitarstjórn leggst í sjálfu sér ekki gegn því að vatnasvið Skjálfandafljóts verði friðlýst ofan Mjóadalsár. Sveitarstjórn telur eðlilegt að afstaða til slíkrar friðunar verði tekin í aðalskipulagi sveitarfélagsins áður en ríkisvaldið tekur fram fyrir hendurnar á sveitarfélaginu í skipulagsmálum. Sveitarstjórn og skipulagsnefnd hafa í vinnu sinni við aðalskipulagsgerðina lagt sig fram um að gæta að umhverfisþætti skipulagsmála í hvívetna," segir í umsögninni.
Bloggað um fréttina
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Skjálfandafljót friðað eða friðlýst -
Ómar Ragnarsson Skjálfandafljót er í raun á virkjanalistanum.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. janúar 2011, Innlent LV fær rannsóknarleyfi
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Fimm svæði í Hafnarfirði friðlýst
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Gengu til styrktar Haítí
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent S&P gefur sér staðfestingu á Icesave
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































