Strumpar æfa fyrir jólasýningu

Strumparnir á Selfossi æfa fyrir jólasýninguna.
Strumparnir á Selfossi æfa fyrir jólasýninguna. mbl.is/Sigmundur G Sigurgeirsson

Lokaæfing fyrir árlega jólasýningu fimleikadeildar UMF Selfoss fór fram í kvöld. Í henni taka þátt rúmlega 400 iðkendur á aldrinum 5-25 ára.

Afraksturinn af erfiðinu er svo tvær sýningar á morgun þar sem þemað er jól í Strumpalandi og búast má við troðfullu íþróttahúsi á báðum sýningum líkt og undanfarin ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert