Telja eins langt gengið og hægt er
Stjórn Félags leikskólakennara telur að nú þegar hafi mörg sveitarfélög og rekstraraðilar leikskóla gengið eins langt og mögulegt er í niðurskurði í leikskólastarfi og að mál sé að linni. Leikskólar nutu ekki góðærisins nema að mjög takmörkuðu leyti. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér.
Þvert á móti bitnaði það á leikskólastarfi með þeim hætti að víða gekk illa að ráða starfsfólk vegna þenslu og samkeppni á vinnumarkaði og þar af leiðandi voru margir skólar ekki fullsetnir svo mánuðum skipti. Þetta ástand hafði um árabil mikil áhrif á starfsemi skólanna, meðal annars jókst álag á stjórnendur og annað starfsfólk. Ástandið hafði ekki síður áhrif á börn og foreldra þeirra, til dæmis þegar þurfti að skerða dvalartíma barna og inntaka nýrra nemenda dróst.
Þegar loks tekst að ráða starfsfólk og koma starfsemi í jafnvægi fer í hönd blóðugur niðurskurður, sums staðar svo mikill að faglegt starf er í hættu. Þetta mun hafa mikil áhrif á menntun og umönnun leikskólabarna enda hafa talsmenn foreldra víða stigið fram og lýst óánægju sinni og áhyggjum.
Stjórn Félags leikskólakennara skorar á sveitarfélög og aðra rekstraraðila að láta nú þegar staðar numið í niðurskurði í leikskólum og annars staðar í skólakerfinu og standa við fögur fyrirheit um að slá skjaldborg um menntun barna og ungmenna. Það er mikill tvískinnungur að skera niður í stórum stíl og ætlast um leið til þess að starfsfólk haldi uppi sömu gæðum og þjónustu og áður. Þegar þrengir að í samfélaginu er öruggt og öflugt skólakerfi ein mikilvægasta stoðin til að tryggja börnum góða menntun, umönnun og skjól. Það er réttlætismál að forgangsraða í þágu þeirra þegar kemur að fjárhagsáætlanagerð."
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Stigðið skrefið til fulls og segið sannleikann. -
Emil Örn Kristjánsson Óréttmæt gagnrýni
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Innlent Fylgst með ákvörðun forsetans
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Skemmtigarður opnaður í Grafarvogi
- Föstudagur, 6. febrúar 2009, Innlent Lögðu áherslu á sterk tengsl
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Heildsala innkallar kerti
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Hárrétt ákvörðun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































