Fréttaskýring: Langtíma atvinnuleysi vaxandi vandi

Ungt fólk er mun betur sett í námi eða öðrum úrræðum en afskiptalaust á bótum, ... stækka

Ungt fólk er mun betur sett í námi eða öðrum úrræðum en afskiptalaust á bótum, að mati vinnuhóps sem félagsmálaráðherra skipaði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Eftir Sigtrygg Sigtryggsson

Skráð atvinnuleysi í nóvember síðastliðnum var 8% eða að meðaltali 13.357 manns. Atvinnuleysi jókst um 5,3% að meðaltali frá október eða um 675 manns, samkvæmt yfirliti Vinnumálastofnunar.

Atvinnulausum fer hægt fjölgandi og í gær voru 15.835 á atvinnuleysisskrá. Fjölgun fólks á skránni hefur verið nokkru minni á þessu hausti en reiknað hafði verið með. Að sögn Karls Sigurðssonar forstöðumanns vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar er ekki önnur skýring nærtækari en að atvinnulífið standi betur en menn höfðu talið. Einnig beri að hafa í huga að eftirlit með brotum hefur verið hert og hinir brotlegu umsvifalaust teknir af atvinnuleysisskrá.

Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá nóvember til desember og þróun síðustu vikna bendir til þess að svo verði einnig í ár. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í desember verði á bilinu 8,1% til 8,6% af vinnuafli í landinu. Búist er við að atvinnuleysið nái hámarki á fyrstu mánuðum næsta árs. Á þessu ári fór atvinnuleysið hæst í apríl, 9,1%.

En þótt heldur færri séu nú atvinnulausir en menn reiknuðu með eru ýmsir váboðar í yfirliti Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði í nóvember. Þannig er fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en 6 mánuði 7.394 eða 49% þeirra sem voru á skránni. Til að setja þessa tölu í samhengi má nefna að samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar eru íbúar Árborgar 7.928. Fjöldi langtíma-atvinnulausra slagar því hátt í íbúafjölda Árborgar og þetta er hærri tala en íbúafjöldi Akraness, sem er 6.630. Fjölgað hefur hratt í hópi langtíma-atvinnulausra á síðustu mánuðum og líkur eru á því að enn fjölgi í þessum hópi.

Atvinnuleysi meðal ungs fólks er einnig mikið áhyggjuefni. Í lok nóvember voru 5.164 á atvinnuleysisskránni á aldrinum 16-29 ára eða 34,3% þeirra sem eru á skránni. Þetta er hærri tala en allir íbúar Fjarðabyggðar sem eru 4.736, samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar.

Félagsmálaráðuneytið hefur sérstaklega skoðað langtíma-atvinnuleysi og atvinnuleysi meðal ungs fólks. Nýlega skilaði vinnuhópur skýrslu. Í tillögum hans er Vinnumálastofnun m.a. hvött til að skylda unga atvinnuleitendur til virkni í samræmi við lagaheimildir, enda sé þessi hópur betur settur í námi eða öðrum reglubundnum úrræðum en afskiptalaus á bótum.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra gerði vanda ungs fólks að umtalsefni á ársfundi Vinnumálastofnunar og sagði þar mikinn auð liggja ónýttan hjá garði. „Við höfum á undanförnum vikum með skipulegum hætti kannað aðstæður og viðhorf atvinnulausra ungmenna í þessu landi. Því miður er það svo að þúsundir þeirra sitja heima á bótum. Þau eru mörg hver vonlítil um vinnu, vonlítil um nám og vonlítil um eigin framtíð. Þeim hefur ekki tekist að finna sér stað í samfélaginu.

Við þessu verðum við að bregðast. Við getum ekki og við megum ekki láta hundruð eða þúsundir ungmenna alast upp sem bótaþega.“

15.017 voru á skrá

Alls voru 15.017 án atvinnu í lok nóvember, 8.756 karlar og 6.261 kona. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu, eins og það er kallað, voru 12.141. Af þeim voru 2.226 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi.

Samtals voru 2.521 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok nóvember í hlutastörfum á móti hluta atvinnuleysisbóta.

Atvinnuleysið er misjafnt eftir landshlutum. Mest er atvinnuleysið hlutfallslega á Suðurnesjum eða 13% en minnst á Vestfjörðum eða 2,8%. Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu er 8,7%, Norðurlandi eystra (6,8%), Vesturlandi (5,8%), Suðurlandi (5,2%), Austurlandi(3,6%) og Norðurlandi vestra(3,2%).

Staðan í einstökum kaupstöðum er þessi: Reykjavík (6.443 atvinnulausir), Kópavogur (1.455), Hafnarfjörður (1.336), Reykjanesbær (1.167) og Akureyri (874).

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Til sölu starex 2.5 Dísel
Er með Hyunday H-1 starex 4x4 skráður 02.2000 skráður 7manna ekin 191 þús. Er ný...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...