Gagnrýna Sjálfstæðismenn fyrir vafasama framsetningu

stækka

mbl.is

Þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna auglýsingar Sjálfstæðisflokksins um skattamál. Að sögn Björgvins G. Sigurðssonar og Árna Þórs Sigurðssonar er öll framsetning í auglýsingunni vafasöm. Ekki sé verið að bera tillögur ríkisstjórnarinnar saman við neinn raunveruleika eða raunverulega valkosti.

„Sjálfstæðisflokkurinn heldur að lesandanum þeirri tálsýn að óbreyttar skattareglur og áður fyrirhugaðar breytingar sé eitthvað sem raunhæft sé eftir að hann sigldi þjóðarbúinu í þrot og braut niður tekjuöflun ríkisins. Raunhæfur samanburður verður aðeins gerður á raunverulegum forsendum,“ segir m.a. í yfirlýsingu þingflokksformannanna.

Þeir benda jafnframt að í kynningu á nýjum tillögum um skatta hafi ríkisstjórnin fyrst og fremst borið þær saman við skattareglur á yfirstandandi ári. Þær reglur og áhrif þeirra svo sem á skattbyrði og dreifingu skattbyrði á mismunandi tekjuhópa séu þekktar. Í þeim efnum hafi hún notað alþjóðlega viðurkenndar aðferðir svo sem skatthlutföll eftir tekjubilum og skattbyrði sem hlutfall af landsframleiðslu. Slíkar aðferðir séu notaðar af alþjóðastofnunum á borð við OECD.

„Útreikningar og samanburður með þeim hætti sýnir tvennt, sem ekki verður dregið í efa. Í fyrsta lagi að skattbyrði í heild og af tekjuskatti sérstaklega verður á árinu 2010 lægri en hún var á valdatíma Sjálfstæðisflokksins fyrir hrun. Í öðru lagi að dreifing hennar verður sanngjarnari, skattbyrði lágtekjufólks verður eitthvað lægri en áður en eitthvað hærri hjá þeim sem meira bera úr býtum. Ítarlegri upplýsingar því til staðfestingar verða birtar á næstu dögum. Þetta eru staðreyndir sem ekki verða hraktar með auglýsingabrellum,“ segir í yfirlýsingu Björgvins og Árna Þórs.

„Í smáu letri neðst á auglýsingunni kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn reiknar það sem skattahækkun að persónuafsláttur hækki um 2.000 kr. í stað 5.800 kr. Þarna er um minni skattalækkun en áður var áformað að gera, en það er hreinn útúrsnúningur að kalla þetta skattahækkun. Með sömu rökum ætti verslunareigandi sem kaupir inn vöru fyrir 5.000 þúsund krónur og verðleggur hana á 10.000 kr. en selur hana að lokum á útsölu fyrir 7.000 krónur að bókfæra söluna sem 3.000 kr. tap í stað 2.000 kr. ágóða! Allir sjá hversu fráleitar slíkar reikningskúnstir eru.

Fyrirsögn auglýsingar Sjálfstæðisflokksins er: „Öll heimili munu greiða hærri skatta“. Þar fyrir neðan segir: „Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar munu kosta alla Íslendinga verulegar fjárhæðir á næsta ári.“ Þar fyrir neðan er svo tafla sem sýnir þennan aukna kostnað sem Íslendingar mega búast við á næsta ári vegna skatthækkana og verðlagsáhrifa þeirra.

Í smáa letrinu kemur aftur á móti fram að þarna sé einnig teknar með þær breytingar sem gerðar voru á miðju þessu ári. Þarna er því um villandi framsetningu að ræða. Einhver þessara áhrifa hafa þegar komið fram og er þarna beitt blekkingum til að slá pólitískar keilur í þágu Sjálfstæðisflokksins á kostnað ríkisstjórnarflokkanna.

Þau dæmi sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur eru miðuð við mánaðartekjur einstaklinga eða fjölskyldna. Meint áhrif skattbreytinganna eru hins vegar sýnd á ársgrundvelli. Með þessu fær fólk ranga tilfinningu fyrir hinni raunverulegu breytingu. Heiðarlegast og gagnsæjast væri að sýna áhrifin á mánaðargrundvelli eða miða við árstekjur. Þá er í þessu samhengi sýnd hækkun höfuðstóls vegna vísitöluáhrifa, en auðvitað dreifist þessi hækkun á allan lánstíma og eru mánaðaráhrifin hverfandi.

Í reiknivélinni sem er á heimsíðu Sjálfstæðisflokksins er smáa letrið hvergi sjáanlegt og geta notendur hennar því ekki áttað sig á því á hvað forsendum vélin byggir. Ljóst má þó vera að vélin byggir á svipuðum forsendum og koma fram í smáa letrinu í auglýsingunni.

Þegar vélin er látin reikna áhrif breytinga á fjármagnstekjuskatti kemur tvennt í ljós.

Hún gerir annarsvegar ráð fyrir að fjármagnstekjuskattur sé að hækka úr 10% í 18% en ekki 15% í 18%. Þannig reiknar hún meiri aukningu en í raun mun verða. Skatturinn hækkaði úr 10% í 15% sl. sumar og hafa áhrif hans því þegar komið fram að nokkru leyti.

Hins vegar kemur í ljós að vélin gerir ekki ráð fyrir 100 þús. kr. frítekjumarki á vaxtatekjur. Því reiknar hún út hækkun strax á fyrstu krónu (reyndar þúsund krónur því vélin sýnir ekki aukastafi). Þarna er því um hrein ósannindi að ræða því raunin er að fjármagnstekjuskattur mun lækka af fjármagnstekjum allt að 220 þús. kr.

Auglýsing Sjálfstæðisflokksins er dapurlegur vitnisburður um ómálefnalegan og ósannan málflutning sem flokkurinn telur bersýnilega best þjóna hagsmunum sínum," segir í yfirlýsingu þingflokksformannanna.


Árni Þór Sigurðsson

Árni Þór Sigurðsson

Björgvin G. Sigurðsson

Björgvin G. Sigurðsson mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Hvammur sumarhús á Snæfellsnesi
Stórt og velbúið sumar/heilsárshús á sunnanverðu Snæfellsnesi vikuleiga. Gistin...
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...