Framlög til dómstóla aukin
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjárframlög ríkisins til héraðsdómstóla, Hæstaréttar og fangelsismála, verði aukin á næsta ári til að mæta auknum málafjölda í kjölfar hruns bankanna. Á móti verða dómsmálagjöld hækkuð meira en önnur gjöld.
Lagt er til að fjárveiting til héraðsdómstólanna hækki tímabundið um 86 milljónir í samræmi við frumvarp um breytingar á lögum um dómstóla. Með frumvarpinu er kveðið á um að dómarar í héraði skuli vera 43 í stað 38 eins og nú er til ársins 2013.
Áætluð launagjöld vegna þessa nema 53 milljónum á ári. Jafnframt er lagt til að aðstoðarmönnum dómara verði fjölgað um fimm talsins og er áætlað að það kosti 33 milljónir á ári.
Þá leggur nefndin til, að fjárveitingar til Hæstaréttar hækki um 16 milljónir í ljósi þess að horfur eru á að málum tengdum bankahruninu komi til að fjölga hjá þar. Miðað er við, að fjárveitingunni verði aðallega ráðstafað til með að fjölga aðstoðarmönnum dómara.
Málum sem fara fyrir Hæstarétt hefur einnig fjölgað úr um 500 á ári í um 700 á sl. tveimur árum. Af þessum sökum hefur biðtími mála lengst um 15%.
Á móti leggur meirihluti fjárlaganefndar til að útgjöld Hæstaréttar minnki um 8 milljónir. Er það gert vegna þess að kjararáð ákvað fyrr á árinu að laun dómara skyldu lækka um 15% en í fjárlagafrumvarpinu gleymdist að gera ráð fyrir því.
Þá er lagt til að rekstrarfjárveiting Fangelsismálastofnunar hækki um 107,2 milljarða vegna fjölgunar fangarýma um 16 í bráðabirgðahúsnæði. Í september féllst ríkisstjórnin á tillögu dómsmálaáðherra um að leigja húsnæði undir bráðabirgðafangelsi þar sem aukinn fjöldi gæsluvarðhaldsfanga hefur leitt til neyðarástands í þessum málaflokki. Nú er stefnt að því að leigja húsnæði á Suðurlandi til þessara nota og tengja reksturinn við Litla-Hraun eftir því sem hægt er þannig að rekstrarkostnaði verði haldið í lágmarki.
Rekstraráætlun vegna þessara rýma felur í sér um 63 milljóna króna launagjöld og húsaleiga er samkvæmt tilboði tæpar 18 milljónir á ári.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Héraðsdómurum fjölgað um fimm
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Greiðslur vegna gjaldþrota tvöfaldast
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Búast við fjölgun hæstaréttardómara
- Miðvikudagur, 24. nóvember 2010, Innlent Útgjöld lækka um 5,4 milljarða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































