Gert að greiða fyrir skipulagsvinnu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvö fasteignafélög til að greiða arkítektastofu 6 milljónir króna fyrir vinnu við skipulagstillögu að svonefndum Hljómalindarreit við Laugaveg. Skipulagsráð hafnaði hins vegar tillögunni.
Félagið Festar ehf. á byggingarreitinn sem afmarkast af Laugavegi, Hverfisgötu, Klapparstíg og Smiðjustíg. Reitur þessi gengur venjulega undir nafninu „Hljómalindarreiturinn“ eða „Sirkusreiturinn“. Festi félagið kaup á eignum á reitnum og m.a. eignast fjölmargar eignir með kaupsamningi við Skipulagssjóð Reykjavíkur í mars 2007. Félagið hefur stefnt að heildaruppbyggingu reitsins, en í því felst að gera þarf verulegar breytingar á núgildandi deiliskipulagi reitsins.
Leitað var til þriggja arkitektastofa til þess að leggja fram hönnunarhugmyndir að uppbyggingu á reitnum, þ.e. til Nexus arkitekta, Arkitektur.is og +Arkitekta. Félagið BTS Byggingar, sem síðar varð Foldir fasteignaþróunarfélags, samdi við arkítektastofurnar árið 2007. Þegar á leið var ákveðið að vinna áfram með tillögu Nexus. Skipulagsráð hafnaði þeirri tillögu á endanum en féllst einróma á tillögu Arkitekturs.is.
Reynt að hafa áhrif á stjórnmálamenn og fjölmiðla
Í dómnum kemur m.a. fram, að á tímabilinu 12. febrúar 2008 til 9. apríl 2008 vann sérstakur hópur, sem í voru Ívar Örn Guðmundsson f.h. Nexus, Níels P. Benediktsson, Hanna Benediktsdóttir og Benedikt Tr. Sigurðsson af hálfu Festa og Folda, Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill og Magnús Árni Skúlason hagfræðingur, að því að reyna að hafa áhrif á fjölmiðla, stjórnmálamenn og fleiri sem voru til þess fallnir að geta haft áhrif á afstöðu skipulagsráðs. Einnig voru haldnir fundir með skipulagsyfirvöldum og var kallað eftir frekari vinnu Nexus í því sambandi.
Fram kemur í dómnum að Nexus krafðist m.a. greiðslu fyrir vinnu sem fór í undirbúning á málþingi í Norræna húsinu. Hafi framsaga Ívars Arnar Guðmundssonar, starfsmanns Nexus, verið til að kynna tillöguna og hluti af þeim „lobbyisma“ sem aðilar sammæltust um að beita.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. desember 2008, Innlent Vöruskemma á umdeildri byggingarlóð til sölu
- Miðvikudagur, 18. febrúar 2009, Innlent Vilja gæða gafla miðborgarinnar lífi
- Föstudagur, 4. september 2009, Innlent Óskar eftir frekari upplýsingum
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Borgin vill fá frekari svör um áform Glitnis
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Andstaða við Húnavallaleið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































