Allt að því lýðskrum

mbl.is/Heiðar

Þingmenn stjórnarandstöðunnar í efnahags- og skattanefnd Alþingis segja að stjórnarfrumvarp um að kjararáði verði bannað út næsta ár að hækka laun þeirra, sem falla undir úrskurðarvald þess, sé allt að því lýðskrum. Vilja þingmennirnir vísa málinu frá.

Í nefndaráliti þingmanna Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Hreyfingarinnar segir að allhörð gagnrýni hafi komið fram á frumvarpið. Segja þingmennirnir að með því sé vegið að sjálfstæði dómsvalds, það sé glapræði að halda dómarastéttinni í gíslingu og ógn við réttaröryggið.

Þá sé verið að eyðileggja launakerfi ríkisins því að kjararáð taki hvort sem er mið af launaþróun. Verið sé að taka ákvörðunarvaldið úr höndum réttbærra fagaðila og færa það inn í sali Alþingis þar sem önnur sjónarmið ráði.

Einnig sé gengið hættulega nærri samkeppnishæfni landsins hvað varðar viðkomandi starfsstéttir og líklegt að ráðstöfunin geti komið losi á starfsmenn sem hún nær til.  Nafnlaun á almennum markaði hafi hækkað undanfarið og skjóti það mjög skökku við að viðhalda launalækkun sem ákvörðuð var fyrr á þessu ári. Líklegt sé að starfsmenn leiti á önnur mið, sérstaklega þar sem álag á þessar stéttir hafi í mörgum tilfellum margfaldast í kjölfar hrunsins.

Loks segja þingmennirnir, að málið sé ekki einungis táknræn aðgerð ríkisstjórnarinnar heldur allt að því lýðskrum. „ Það er óásættanlegt að fagmennska sé virt að vettugi í viðleitni stjórnvalda við að slá ryki í augu fólks. Ef það er einlægur ásetningur stjórnvalda að viðhalda launalækkuninni í krafti þess að hún sé táknræn leggur minni hlutinn til að þingmenn verði teknir út úr kjararáði og laun þeirra meðhöndluð á þann táknræna hátt sem ríkisstjórninni þykir best henta í ímyndarbaráttu sinni en aðrar stéttir verði ekki dregnar inn í hana. Slíkt kæmi til móts við markmið ríkisstjórnarinnar en stefndi ekki launakerfi ríkisins í voða. Auk þess sem hættan á spekileka yrði þá minnkuð," segir í nefndarálitinu. .

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert