Greiðslur í fæðingarorlofi lækkaðar
Meirihluti félagsmálanefndar Alþingis er þeirrar skoðunar að frekar eigi að lækka greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði tímabundið en fresta einum mánuði af fæðingarorlofi um 3-4 ár. Leggur nefndin til að hámarksgreiðsla úr sjóðnum verði 300 þúsund krónur á mánuði.
Í frumvarpi félagsmálaráðherra voru ákvæði um að fresta skyldi einum mánuði af fæðingarorlofi. Í greinargerð meirihluta nefndarinnar, sem lögð var fram á Alþingi í gærkvöldi, segir að margir þeirra, sem veittu umsögn um frumvarpið, hafi bent á að varast skyldi að skerða þann tíma sem börn hefðu til samvista við foreldra sína á mikilvægum tíma í mótunarskeiði þeirra og að með þessari breytingu væri réttur barna einstæðra mæðra til samvista við foreldra í ákveðnum tilfellum skertur niður í fimm mánuði.
Nefndarmeirihlutinn segist taka undir þessi sjónarmið og bendir jafnframt á að
tillagan feli ekki í sér
sparnað heldur frestun á útgjöldum ríkissjóðs um 3–4 ár. Ekki sé
raunhæft að ætla að staða
ríkissjóðs veiti svigrúm til að auka útgjöld vegna fæðingarorlofs sem
óhjákvæmilega hlýst
af því að frestaðir mánuðir bætast við útgjöld vegna fæðingarorlofs á
árunum 2013 og 2014.
Nefndin leggur þess í stað að hámarksgreiðsla úr sjóðnum verði lækkuð úr 350 þúsund krónum í 300.000 krónur en hlutfall af meðaltali launa og reiknaðs endurgjalds verði óbreytt, 80%, fyrir þann hluta launa sem er undir 200.000 krónum og 75% fyrir laun umfram 200.000 krónur.
„Meiri hlutinn telur óheppilegt að verið sé að skerða fæðingarorlofið í þriðja sinn á stuttu tímabili. 1. janúar 2009 lækkuðu mánaðarlegar greiðslur úr 480.000 kr. í 400.000 kr. og 1. júlí voru þær lækkaðar í 350.000 kr. Meiri hlutinn telur að lengra verði ekki gengið og ef þær breytingar sem nú eru lagðar til dugi ekki verði að hækka tryggingagjaldið eða endurskoða fæðingarorlofskerfið í heild sinni," segir í greinargerðinni.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. nóvember 2009, Innlent Foreldrar fresta einum mánuði
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent BSRB vill hækka fjármagnstekjuskatt
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Innlent Metár hjá Fæðingarorlofssjóði
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Færri karlar taka fæðingarorlof eftir hrun
- Laugardagur, 7. febrúar 2009, Innlent Tæmist sjóðurinn í árslok?
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































