Unnu spjöll á sendiráði Íslands
Spellvirkjarnir halda því fram að allt tal um græna orku sé lygi. Myndin er fengin af vef Indymedia.
Eftir Jón Pétur JónssonSpjöll voru unnin á sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn í nótt. Málningu var slett á veggi og þá var m.a. úðað á eftirlitsmyndavél, rúður og skjaldamerki Íslands. Hópur aðgerðasinna hefur lýst verknaðinum á hendur sér. Sendiherra Íslands í Danmörku segir að málið sé nú í höndum dönsku lögreglunnar.
Svavar Gestsson sendiherra sagði í samtali við mbl.is að starfsmenn sendiráðsins hefðu tekið eftir þessu er þeir mættu til vinnu í morgun. „Síðan voru gerðar viðeigandi ráðstafanir gagnvart danska utanríkisráðuneytinu, lögreglunni og öðrum. Síðan er þetta hreinsað.“
Aðspurður sagði Svavar að spellvirkjarnir hefðu ekki farið inn í sendiráðið. Engar rúður hefðu verið brotnar eða annað þvíumlíkt. „Það var bara spreyjað á glugga og veggi,“ segir hann. Þá segist hann ekki hafa hugmynd hver eða hverjir hafi verið þarna á ferð.
Svipað atvik átti sér stað fyrir um tveimur til þremur árum að sögn Svavars. „Við vitum ekkert um þetta og menn fundu ekki út úr þessu síðast. Þetta er núna í höndum dönsku lögreglunnar að leita skýringa á þessu,“ segir Svavar og bætir við að dagurinn hafi gengið sinn vanagang í sendiráðinu.
Fram kemur á vefsíðunni Indymedia Danmark að spjöllin á sendiráðinu hafi verið unnin snemma í morgun. Þar segir jafnframt að íslensk stjórnvöld stæri sig af umhverfisvænni orku. Spellvirkjarnir mótmæla því og segja að hugtakið „græn orka“sé ekki til, sér í lagi ef hún er notuð til að knýja þungaiðnað.
Fram kemur í fréttinni á vef Indymedia að Íslendingum verði refsað fyrir misgjörðir sínar.
Komið hefur til átaka á milli mótmælenda og lögreglu í Kaupmannahöfn, þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer nú fram. Ekki liggur fyrir hvort skemmdarverkin sem voru unnin á sendiráðinu tengist þeim hópum sem hafa staðið fyrir mótmælum í borginni.
Bloggað um fréttina
-
Erling Garðar Jónasson Náttúruleysingjar Íslands gera hervirki í Köbenhavn. -
Einar Guðjónsson Alveg rétt mat -
Börkur Hrólfsson Okkar framlag til loftslagsmála í heiminum -
Jón Aðalsteinn Jónsson Misgjörðir feðranna. -
Kristin stjórnmálasamtök Öfgaverk: Hvað fær menn til svo and-íslenzkra skemmdarverka? -
Rex Power Umhverfis hvað? -
Hörður Þórðarson Öfgafullir rökleysingjar -
Kolbrún Hilmars Þarna missti ég af einhverju. -
Steinunn Helga Snæland Umhverfisverndarsinnar??
Innlent »
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
- Veita Hvít-Rússum aðstoð
- Áfallin staða A-deildar í plús
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 18. ágúst 2009, Innlent Sjö hafa verið yfirheyrðir
- Mánudagur, 1. desember 2008, Innlent Enginn hefur verið handtekinn
- Miðvikudagur, 13. janúar 2010, Innlent Eftirlitsmyndavélum við kirkjur kann að fjölga
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Mannabreytingar í utanríkisþjónustunni
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Rauðri málningu slett á hús Hreiðars Más
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...





































