Allianz gert að greiða 1 milljón í sekt
Neytendastofa hefur úrskurðað að Allianz hafi brotið gegn lögum með samanburði á ávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar og lagt bann við auglýsingu Allianz og félaginu gert að greina eina milljón króna í stjórnvaldssekt. Er þetta annað brot Allianz á þessu sviði.
Nýi Kaupþing banki, nú Arion banki, kvartaði til Neytendastofu yfir samanburði Allianz á nokkrum lífeyrissparnaðarleiðum. Nýi Kaupþing taldi samanburðinn villandi og þá ávöxtun sem borin var saman ekki samanburðarhæfa.
Í auglýsingunni var borin saman raunávöxtun einstaklinga með viðbótarlífeyrissparnað hjá Allianz, Nýja Kaupþingi og nokkrum öðrum sjóðum. Í auglýsingunni var búið að umreikna nafnávöxtun sparnaðarins yfir í raunávöxtun. Við þann umreikning ætti m.a. að taka tillit til verðbólgu og gengisbreytinga, þegar sparnaður er í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum.
Í ávöxtunartölum fyrir sparnað hjá Allianz hafði ekki verið tekið tillit til gengisbreytinga, þar sem hjá Allianz er sparað í evrum. Þá hafði verið tekið tillit til verðbólgu í Þýskalandi, þar sem höfuðstöðvar Allianz eru, en ekki verðbólgu á Íslandi. Í auglýsingunni var því raunávöxtun einstaklings með viðbótarlífeyrissparnað tekinn út á Íslandi borin saman við raunávöxtun einstaklings með viðbótarlífeyrissparnað tekinn út í Þýskalandi. Neytendastofa taldi samanburðinn ekki í samræmi við lög og féllst því á kröfur Nýja Kaupþings.
Um var að ræða annað brot Allianz á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu við samanburð á ávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar og því taldi Neytendastofa ástæðu til að leggja stjórnvaldssekt á Allianz. Með ákvörðuninni er samanburðarauglýsing Allianz bönnuð og Allianz gert að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. mars 2009, Innlent Eigandi sparnaðar ber kostnaðinn
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent Fæstir taka þóknun
- Miðvikudagur, 24. febrúar 2010, Innlent Auglýsingar e-Vildarkorta bannaðar
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Sparnaður fær aðvörun
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Neytendastofa sektar Vodafone
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“

































